Innlent

Frið­lýsir hluta Fjaðrár­gljúfurs

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá vinstri: Fanney Ásgeirsdóttir, þjóðgarðsvörður, Sveinn Hreiðar Jensson, sveitastjórnarmaður í Skaftárhreppi, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, Auður Björnsdóttir, sveitarstjórnarmaður, og Björn Helgi Snorrason, sveitastjórnarmaður og varaoddviti, við Fjaðrárgljúfur.
Frá vinstri: Fanney Ásgeirsdóttir, þjóðgarðsvörður, Sveinn Hreiðar Jensson, sveitastjórnarmaður í Skaftárhreppi, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, Auður Björnsdóttir, sveitarstjórnarmaður, og Björn Helgi Snorrason, sveitastjórnarmaður og varaoddviti, við Fjaðrárgljúfur. Stjórnarráðið

Umhverfisráðherra friðlýsti í dag austuhluta Fjaðrárgljúfurs og svæði ofan þess austan megin. Friðlýsingin nær yfir svæði í eigu einkahlutafélags en það á í samvinnu við stjórnvöld um verndun og uppbyggingu innviða á svæðinu.

Friðlýsta svæðið ofan gljúfursins austanmegin er í eigu Hverabergs ehf. Félagið skrifaði undir samstarfssamning við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið um uppbyggingu og verndu gljúfursins í janúar.

Fjaðrárgljúfur er með vinsælli ferðamannastöðum á suðausturlandi. Ágangur vegna vaxandi vinsælda ferðamanna hefur leitt til þess að loka hefur þurft svæðinu tímabundið. HB Heiði ehf. sem á jörðina Heiði hóf gjaldtöku við Fjaðrárgljúfur í fyrra. Sami eigenda er að HB Heiði og Hverabergi.

Gljúfrið er einn og hálfur kílómetri að lengd og hundrað metra djúpt þar sem það er dýpst. Það er sagt gott dæmi um virkt ferli landmótunar sem hófst í lok síðustu ísaldar fyrir um tíu þúsund árum sem sé enn í gangi í tilkynningu á vefsíðu umhverfis- og orku- og loftslagsráðuneytisins.

Ofan við gljúfrið séu malarhjallar sem bendi til þess að jökullón hafi myndast fyrir framan hörfandi jökul og vegna fyrirstöðu sem lá efst í núverandi gljúfri. Lónið hafi fyllst tiltölulega fljótt af framburði en vatnsmiklar og aurugar jökulár hafi síðar átt auðvelt með að rjúfa sér farveg í undirliggjandi berggrunn úr móbergi.

Innst í Fjaðrárgljúfri eru fossar og því er mótun þess enn í gangi jafnvel þó að Fjaðrá sé mun kraftminni en jökulárnar í lok ísaldar.


Tengdar fréttir

Hefja gjald­töku við Fjaðrár­gljúfur

Nýjir eigendur jarðarinnar Heiðar í Skaftárhreppi, þar sem má finna náttúruperluna Fjaðrárgljúfur, hafa síðustu mánuði unnið að því að lagfæra bílastæði og göngustíga ásamt því að laga til salernisaðstöðu á svæðinu. Samhliða því hefur gjaldtaka verið tekin upp á bílastæðum á svæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×