Fótbolti

Ísak skoraði og Dus­seldorf enn í bar­áttunni um sæti í efstu deild

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ísak Bergmann fagnar marki sínu í dag.
Ísak Bergmann fagnar marki sínu í dag. Vísir/Getty

Ísak Bergmann Jóhanesson landsliðsmaður í knattspyrnu skoraði eitt marka Dusseldorf þegar liðið vann 3-1 sigur á Nurnberg. Þá mættust Hamburger og St. Pauli í eldheitum nágrannaslag en bæði lið eru með í toppbaráttunni.

Lætin í nágrannaslag Hamburger SV og St. Pauli hófust reyndar áður en leikurinn var flautaður á. Leikurinn var afar mikilvægur fyrir bæði lið því með sigri átti St. Pauli möguleika á að tryggja sér sæti í þýsku úrvalsdeildinni og þá þurfti Hamburger á sigri að halda til að eiga enn möguleika á umspilssæti um sæti í efstu deild.

Þegar liðin voru í miðri upphitun fyrir leikinn byrjuðu um þrjátíu leikmenn og starfsmenn félaganna að rífast úti á vellinum og var hiti í mönnum. Málið snerist um að gestirnir í St. Pauli áttu að hafa verið á vallarhelmingi heimaliðsins að hita upp.

„Ef allt er innan marka þá er þetta allt í góðu,“ sagði Fabian Hurzeler knattspyrnustjóri St. Pauli við Bild en menn róuðust fljótt niður og leikurinn gat hafist.

Leikurinn sjálfur var frekar tíðindalítill. Mark var dæmt af Hamburger SV á 62. mínútu vegna brots en bæði lið fengu sín færi í leiknum. Á 85. mínútu kom loks fyrsta og eina mark leiksins. Það skoraði Robert Glatzel fyrir Hamburger SV sem þar með á enn möguleika á þriðja sæti deildarinnar sem tryggir liðinu umspil við lið í þriðja neðsta sæti úrvalsdeildarinnar.

Heimalið Hamburger misnotaði vítaspyrnu í uppbótartíma en það kom ekki að sök og liðið vann góðan 1-0 sigur fyrir framan troðfullan Volksparkstadion.

Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn af bekknum hjá Fortuna Dusseldorf sem vann 3-1 sigur á Nurnberg. Ísak kom inná á 59. mínútu leiksins og þrettán mínútum síðar skoraði hann þriðja mark Dusseldorf og innsiglaði sigur liðsins. 

Ísak og félagar eru í áðurnefndu þriðja sæti, eru fjórum stigum á undan liði Hamburger SV og tveimur stigum á eftir liði Holstein Kiel sem er í 2. sæti. Holstein Kiel á þó leik til góða og getur náð efsta sætinu af St. Pauli þegar liðið mætir Wehen á morgun.

Staða efstu liða:

1. St. Pauli 63 stig eftir 32 leiki

2. Holstein Kiel 61 stig eftir 31 leik

3. Dusseldorf 59 stig eftir 32 leiki

4. Hamburger SV 55 stig eftir 32 leiki

Alls eru leiknar 34 umferðir í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×