„Þetta er töfrum líkast“ Smári Jökull Jónsson skrifar 17. apríl 2024 23:01 Belingham og Vinicius Jr. fagna í leikslok. Vísir/Getty Jude Bellingham er kominn í undanúrslit Meistaradeildarinnar á sínu fyrsta tímabili með Real Madrid. Hann gæti mætt gömlu félögum sínum í Dortmund í úrslitum en fyrst þarf Real Madrid að komast í gegnum Bayern Munchen í undanúrslitum. „
Þetta er léttir því við lögðum svo mikið í þennan leik,“ sagði Bellingham í viðtali eftir leik. „Ég hef spilað gegn City og verið nálægt því að vinna. Maður heldur að maður sé að fá eitthvað út úr leiknum og skyndilega kippa þeir því frá þér. Þú þarft að leggja mjög hart að þér til að vinna þá. Að vinna leikinn eru risastór verðlaun,“ bætti Bellingham við en leikmenn Real Madrid áttu í vök að verjast lengst af í leiknum og voru orðnir gríðarlega þreyttir undir lok framlengingar. Bellingham var svo sannarlega í skýjunum eftir sigurinn en hann hefur verið frábær á tímabilinu. „Þetta er ótrúlegt. Augnablik eins og þetta er töfrum líkast og þetta snýst um hugarfarið. Þegar þú nærð smáatriðunum réttum og færð þessi augnablik. Líkt og vítakeppnin, þegar strákarnir héldu ró sinni.“ Bellingham skoraði í vítakeppninni en bróðir hans var mættur í stúkuna til að sjá leikinn. „Þetta eru töfrar. Þetta var fallegt. Bróðir minn er hér í dag og þetta er í fyrsta sinn sem hann hefur haft möguleikann á að sjá mig spila fyrir Madrid. Ég er mjög stoltur yfir því.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Sjá meira