Sport

Baunað á Brady: „Þín verður á­vallt minnst sem tíkar Eli Manning“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Brady var ferskur í gær.
Brady var ferskur í gær. Getty

Goðsögnin Tom Brady var grillaður af fyrrum félögum og grínistum í sértilgerðum þætti sem streymt var beint á Netflix vestanhafs í nótt. 

Will Ferrell og Kim Kardashian voru á meðal þeirra sem komuvið sögu í þriggja klukkutíma langri grillun Brady sem hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Kevin Hart og Jeff Ross fóru fyrir sýningunni og þá stigu margir fyrrum félagar Brady á svið. Þar á meðal Rob Gronkowski, Julian Edelman og fyrrum þjálfari hans, Bill Belichick.

Við erum hér saman komin til að grilla besta leikstjórnanda sögunnar. Eða bíddu við, er Joe Montana ekki örugglega í húsinu? sagði Hart meðal annars í sýningunni.

Margt af því sem fram fór er of dónalegt til að hafa eftir en Belichick gerði meðal annars grín að Brady vegna eignarhalds hans á enska fótboltafélaginu Birmingham City, sem féll úr B-deildinni ensku um helgina.

„Ég sé að fótboltaliðið þitt, Birmingham City, féll um deild á Englandi,“ sagði Belichick.

„Fyrir þá sem ekki þekkja enska boltann og bullið í þeirra óljósa fallkerfi, þá skal ég útskýra það á hreinni ensku fyrir ykkur: Þeir eru ömurlegir.“

Hann sneri sér að Brady og bætti við: „Ekki svo auðvelt að stjórna liði, er það Tom?“

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×