Fótbolti

Bielsa ætlar að velja á­huga­mann í lands­liðs­hóp Úrúgvæ

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hinn 68 ára gamli Bielsa er engum líkur.
Hinn 68 ára gamli Bielsa er engum líkur. ANP/Getty Images

Knattspyrnuþjálfarinn Marcelo Bielsa er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir. Hann er í dag landsliðsþjálfari Úrúgvæ og heldur áfram að gera hlutina eftir eigin höfði. Stefnir Bielsa á að velja áhugamann í næsta landsliðshóp Úrúgvæ.

Lærisveinar Bielsa mæta Kosta Ríka í vináttuleik í lok mánaðar. Verður það 11. leikur Bielsa með liðið eftir að taka við því á síðasta ári. Undir hans stjórn hefur Úrúgvæ unnið sex af síðustu tíu leikjum sínum.

Úrúgvæ tekur þátt í Suður-Ameríkukeppninni í sumar og er leikurinn gegn Kosta Ríka hluti af undirbúningi fyrir mótið. Það breytir því þó ekki að Bielsa virðist ætla að gefa leikmanni tækifæri sem fæst ef einhver höfðu heyrt um áður en orðrómur þess efnis að hann yrði í næsta landsliðshópi fór af stað.

Fjölmiðillinn TNT í Argentínu opinberaði að Bielsa væri að íhuga að velja Walter Domínguez í hópinn. Téður Domínguez er 24 ára gamall framherji sem hefur skorað alls 57 mörk í 39 leikjum sínum með áhugamannaliðinu Juventud de Soriano. 

Þar af hefur hann skorað 38 mörk í síðustu 19 leikjum sínum. Liðið er svo lítt þekkt að það er ekki með eigin Wikipedia-síðu. Það hafa þó 2500 líkað við Facebook-síðu þess.

Leikmannahópur Úrúgvæ verður að mestu byggður á leikmönnum sem spila í efstu deild þar í landi en stórstjörnurnar Darwin Núñez [Liverpool] og Federico Valverde [Real Madríd] verða að öllum líkindum einnig í hópnum.

Um er að ræða 21 manns leikmannahóp en Bielsa gat ekki kallað upp leikmenn frá Nacional, Atlético Peñarol, Racing Club de Montevideo og Danubio. Því ákvað þjálfarinn að leita í neðri deildirnar þar sem Domínguez spilar.

Í stuttu viðtali nýverið staðfesti framherjinn að Knattspyrnusamband Úrúgvæ hefði haft samband við hann og tilkynnt honum að hann væri í hópnum fyrir komandi landsleik.

„Ég var ekki að búast við þessu, þetta kom mér verulega á óvart. Í sannleika sagt er ég mjög hamingjusamur.“

Þar sem Domínguez er ekki atvinnumaður má reikna með að hann sé í vinnu með fótboltanum og hann þarf því að fá frí í vinnunni til að geta tekið þátt í undirbúningnum fyrir leik Úrúgvæ og Kosta Ríka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×