Erlent

Til­lagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Mikinn reyk lá yfir Rafah þegar Ísraelsher fór að gera árásir á borgina í dag.
Mikinn reyk lá yfir Rafah þegar Ísraelsher fór að gera árásir á borgina í dag. AP

Ísraelsher hóf loftárásir á Rafah-borg á Gasa stuttu eftir að í ljós kom að Ísraelar kæmu ekki til með að samþykkja þá vopnahléstillögu sem Hamas-samtökin samþykktu fyrr í dag. 

Hamas-samtökin birtu rétt í þessu afrit af vopnahléstillögunni sem þau samþykktu fyrr í dag. Í henni felast nokkrir fasar. Í þeim fyrsta felst 42 daga vopnahlé á Gasa í skiptum fyrir 33 gísla, þar af öllum konum, börnum og sjúklingum sem enn eru í haldi. 

Að auki yrði þrjátíu palestínskum föngum sleppt úr haldi Ísraelsmanna í skiptum fyrir hvern gísl, og fimmtíu föngum í skiptum fyrir hverja konu úr Ísraelsher. Palestínumönnum sem hafa þurft að flýja heimili sín vegna loftárása væri hleypt aftur að heimilum sínum. 

Þá yrði gengið til viðræðna á ný, og Hamas-liðar myndu á þeim tíma frelsa þá gísla sem eftir verða, meðan Ísraelsher myndi draga úr hernaði á svæðinu. 

Í síðasta fasanum felast skipti á líkum þeirra gísla sem látist hafa í haldi Hamas og gerð uppbyggingaráætlunar á Gasaströndinni sem næði yfi næstu þrjú til fimm ár, undir eftirliti fjölda þjóða og alþjóðlegra stofnana, þar með talið Egyptalands, Katar og Sameinuðu þjóðanna. 

Skriðdrekar í Rafah

Embætti Benjamíns Netanjahús forsætisráðherra Ísraels gaf út að tillagan væri langt frá grundvallarkröfum Ísraels en þrátt fyrir það yrðu erindrekar sendir til Egyptalands að nýju til frekari viðræðna. 

Í frétt AP er sagt frá því að eftir að íbúar í Rafah-borg hafi heyrt af mögulegu vopnahléi hafi þeir hlaupið um göturnar og hrópað af fögnuði. Fögnuðurinn hafi þó ekki varið lengi vegna þess að Ísraelsher fór skömmu síðar að gera árásir á borgina.

Miðillinn hefur eftir tveimur heimildum að Ísraelsher hafi sent skriðdreka til Rafah í kvöld. Ráðamenn í Ísrael tilkynntu fyrr í dag að til stæði að senda herinn til atlögu gegn Hamas í Rafah á suðurhluta Gasastrandarinnar en þangað hafa hundruð þúsunda Palestínumanna flúið á undanförnum mánuðum. Frekari skýringar á aðgerðinni hafa ekki fengist frá Ísraelsher. 

Embættismaður við landamærin, Egyptalands-megin, segir skriðdrekana staðsetta allt að tvö hundruð metrum frá landamærum Gasa og Egyptalands. Ekki liggur fyrir hversu umfangsmikil árásin er að svo stöddu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×