Innlent

Enok á­kærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan

Árni Sæberg skrifar
Aðalmeðferð í máli Enoks fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Enok hefur verið í sviðsljósinu undanfarið vegna þess að hann er kærasti og barnsfaðir Birgittu Lífar Björnsdóttur áhrifavalds.
Aðalmeðferð í máli Enoks fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Enok hefur verið í sviðsljósinu undanfarið vegna þess að hann er kærasti og barnsfaðir Birgittu Lífar Björnsdóttur áhrifavalds. Vísir

Enok Vatnar Jónsson, sjó- og athafnamaður, hefur verið ákærður fyrir tvær grófar líkamsárásir. Við framkvæmd annarrar þeirra henti hann brotaþola niður tröppur.

Aðalmeðferð fór fram í máli Enoks Vatnars og annars manns í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar voru tekin fyrir tvö mál, annað á hendur þeim báðum og hitt á hendur Enoki einum.

Tröðkuðu á höfði manns í félagi við óþekktan þriðja mann

Í ákæru, sem Vísir hefur undir höndum, segir að mennirnir sæti ákæru fyrir að hafa í júlí árið 2022, fyrir utan veitingastað við Laugaveg, veist með ofbeldi að ónafngreindum manni.

Þeir hafi veitt honum ítrekuð hnefahögg í andlit, höfuð og líkama, sparkað ítrekað í líkama brotaþola, Enok síðan fleygt honum niður tröppur og mennirnir báðir, auk óþekkta mannsins, í kjölfarið sparkað ítrekað í brotaþola og traðkað á höfði hans þar sem hann lá.

Af þessu hafi brotaþoli hlotið viðbeinsbrot, skurð á eyrnasnepli sem náði í gegnum snepilinn, opið sár á höfði, yfirborðsáverka á höfði, roða og bólgu á víð og dreif um handleggi og mar og skrámur á hægra hné.

Braut augntóttargólf með ítrekuðum höggum

Hin ákæran er gegn Enoki fyrir líkamsárás í byrjun júlí árið 2021 á skemmtistað við Austurstræti í Reykjavík, með því að veitast með ofbeldi að ónafngreindum manni og slá hann fjórum höggum í andlit.

Afleiðingar þess hafi verið að brotaþoli hlaut augntóttargólfsbrot, auk verulegrar bólgu yfir hægra auga og höfuðverk.

Bæði brot eru talin varða við ákvæði almennra hegningarlaga um líkamsárás, sem varðar allt að þriggja ára fangelsi. Ákæruvaldið krefst því að báðir sakborningar verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þá eru gerðar einkaréttarkröfur á hendur báðum mönnum fyrir hönd brotaþola í fyrra málinu. Þess er krafist að þeir greiði hvor um sig 1,5 milljón í miskabætur og að Enok greiði 28 þúsund krónur í skaðabætur.

Brotaþoli í seinna málinu gerir kröfu um hálfa milljón króna í miskabætur úr hendi Enoks.


Tengdar fréttir

Lögreglan rannsakar átökin við Vínbúðina

Lögregla rannsakar nú slagsmál sem brutust út á bílastæðinu við Vínbúðina á Dalvegi í gærkvöld og hyggst taka skýrslur af tveimur einstaklingum sem voru handteknir í tengslum við málið.

„Sit inni í bíl og horfi á þessa gaura labba aftan að honum“

Birgitta Líf Björnsdóttir og kærasti hennar Enok Vatnar Jónsson ræða árásina sem hann varð fyrir við Vínbúð ÁTVR á Dalvegi í Kópavogi í hlaðvarpsþættinum Betri helmingurinn. Birgittu grunar að árásarmennirnir tveir hafi elt þau að búðinni en kveðst ekki vita hvaðan árásin sé sprottin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×