Fótbolti

„Höfum vaxið með hverjum leik“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Marco Reus yfirgefur Dortmund í sumar, hver veit nema hann og Edin Terzić lyfti saman bikar áður en það gerist.
Marco Reus yfirgefur Dortmund í sumar, hver veit nema hann og Edin Terzić lyfti saman bikar áður en það gerist. Valerio Pennicino/Getty Images

Edin Terzić, þjálfari Borussia Dortmund, var eðlilega svífandi um á bleiku skýi þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir 1-0 sigur sinna manna í París. Dortmund lagði París Saint-Germain samanlagt 2-0 í einvígi liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

„Fyrir fyrsta leikinn gegn PSV Eindhoven [Í 16-liða úrslitum] töluðum við fyrst um hversu stutt ferðin til Lundúna gæti verið,“ sagði Terzić en úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer að þessu sinni fram á Wembley.

„Þá voru enn mörg spurningamerki. Í fyrra töpuðum við þýska meistaratitlinum á heimavelli á lokadegi tímabilsins.“

„Ég er glaður að við gátum gefið stuðningsfólki okkar eitthvað til baka. Við höfum vaxið með hverjum leik og áttuðum okkur á endanum á því að við gætum verið liðið sem myndi koma öllum á óvart.“

„Ég er mjög hamingjusamur að vera kominn í úrslitaleikinn með liðinu mínu,“ sagði þjálfarinn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×