Körfubolti

Aþena upp í Subway-deildina

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tanja Ósk Brynjarsdóttir er fyrirliði Aþenu sem komið er í Subway-deildina.
Tanja Ósk Brynjarsdóttir er fyrirliði Aþenu sem komið er í Subway-deildina. Vísir/Hulda Margrét

Aþena tryggði sér í kvöld sæti í Subway-deild kvenna í körfubolta á næstu leiktíð þegar liðið lagði Tindastól á Sauðárkróki, lokatölur 72-77.

Þar sem Aþena leiddi einvígið 2-1 fyrir leik kvöldsins var ljóst að Stólarnir þurftu sigur til að knýja fram oddaleik. Það gekk ekki og Aþena komið í efstu deild.

Sianni Martin var stigahæst hjá Aþenu með 25 stig og 9 fráköst. Barbara Zieniewska skoraði 15 stig og Elektra Mjöll Kubrzeniecka skoraði 13 stig. Andriana Kasapi var stigahæst í liði Tindastóls með 21 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×