Fótbolti

„Mbappé kann ekki að vera hetja“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylian Mbappe sést hér eftir að Paris Saint-Germain tapaði á móti Borussia Dortmund í gærkvöldi.
Kylian Mbappe sést hér eftir að Paris Saint-Germain tapaði á móti Borussia Dortmund í gærkvöldi. AP/Lewis Joly

Kylian Mbappé og félögum í PSG tókst ekki að komast í gegnum Borussia Dortmund í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi og eru því úr leik.

Mbappé fær að heyra það í evrópskum blöðum eftir þessi úrslit. Hann fékk góð færi í báðum leikjum sem og félagar hans en Paris Saint-Germain lék í 180 mínútur á móti þýska liðinu án þess að skora.

Fleiri en eitt stangar- og sláarskot í báðum leikjum hjá Frökkunum og vonbrigðin mikil.

Franska blaðið L'Équipe gefur Mbappé aðeins tvo af tíu mögulegum fyrir frammistöðu sína í leiknum í gær.

Fyrirsögn franska blaðsins er „Draumurinn á enda“ en Paris Saint-Germain hefur sankað af sér stórstjörnum síðustu ár til þess að ná því loksins að vinna Meistaradeildina. Liðið komst í úrslitaleikinn 2020 en tapaði þá fyrir Bayern München.

PSG var í algjöru dauðafæri að komast í úrslitaleikinn á Wembley í ár enda að mæta liði sem er í fimmta sæti í þýsku deildinni. Allt kom fyrir ekki.

„Kvöld eins og þessi verða hans arfleið. Sjö ár af misheppnuðum tilraunum,“ skrifaði blaðamaður Daily Mail.

„Mbappé kann ekki að vera hetja“ er uppslátturinn í spænska blaðinu Sport.

Allt lítur út fyrir að Kylian Mbappé sé á förum frá París og muni semja við spænska félagið Real Madrid í sumar.

„Hann kveður frönsku höfuðborgina með meiri sársauka en sóma,“ segir í spænska blaðinu Marca.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×