Innlent

Drógu fiski­bát sem fékk veiðar­færi í skrúfuna til hafnar

Kjartan Kjartansson skrifar
Tveir björgunarbátar frá höfuðborgarsvæðinu komnir að fiskibátnum á Faxaflóa í gærkvöldi.
Tveir björgunarbátar frá höfuðborgarsvæðinu komnir að fiskibátnum á Faxaflóa í gærkvöldi. Landsbjörg

Björgunarbátar af suðvesturhorninu drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna á Faxaflóa til hafnar í gærkvöldi. Þokkalegt veður var og ekkert amaði að áhöfn bátsins.

Báturinn var staddur við Múlahraun vestur af Akranesi þegar ólukkan dundi yfir. Áhöfnin óskaði eftir að vera dregin til lands og voru björgunarbátarnir Sjöfn og Stefnir frá Reykjavík og Kópavogi kallaðir út. Sjöfn tók bátinn í tog um klukkan sjö í gærkvöldi, að því er kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

Skipstjóri bátsins óskaði eftir að vera dreginn til hafnar í Keflavík þar sem talsverður afli var um borð sem þurfti að landa þar. Stefnir og Sjöfn eru minni björgunarbátar og því var björgunarskipið Hannes Hafstein í Sandgerði kallað út til að taka við bátnum.

Björgunarskipið kom svo með fiskibátinn til hafnar í Keflavík upp úr ellefu í gærkvöldi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×