Íslenski boltinn

„Eitt­hvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði frammistöðu Stjörnunnar í kvöld ekki hafa verið góða.
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði frammistöðu Stjörnunnar í kvöld ekki hafa verið góða. Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar sagði að hans lið þyrfti meiri tíma til að vera tilbúið í slaginn í Bestu deildinni. Hann sagði leikmenn þurfa að svara fyrir ákveðna hluti á fundi á morgun.

„Byrjunin er náttúrulega skelfileg. Það var einhver taugatitringur og einhver misskilningur sem varð til þess að við byrjum leikinn svona,“ sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir slæmt 5-1 tap gegn Breiðablik í Bestu deild kvenna í kvöld. Stjarnan var lent 3-1 undir eftir stundarfjórðung í leiknum.

„Við skynjuðum það úti á vellinum í upphitun að spennustigið var ekki alveg hárrétt og við ræddum það núna eftir leikinn. Það er eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun.“

Síðari hálfleikur var tíðindalítill og sagði Kristján að þar hefðu allavega verið framfarir hjá Stjörnuliðinu síðan í fyrri hálfleiknum.

„Þá hreyfðum við okkur réttar í varnarleiknum. Við náðum að útskýra betur fyrir leikmönnum hvernig þær áttu að hreyfa sig í varnarleiknum. Ég held það hafi verið aðalmálið. Síðan fórum við aðeins að berjast um boltann gegn andstæðingnum.“

Hann sagði Blikaliðið einfaldlega vera betra en Stjarnan.

„Við vorum að spila við lið sem er betra en við, það er stærsti hlutinn.“

Miklar breytingar voru á liði Stjörnunnar eftir síðasta tímabil og Kristján sagði að liðið þurfti einfaldlega meiri tíma.

„Við erum sennilega á pari í stigasöfnun miðað við frammistöðu í leikjunum. Eins og sást á fyrri hálfleiknum þá er liðið ekki alveg tilbúið. Breytingarnar sem hafa orðið á milli ára eru það miklar að það sést töluvert á liðinu. Kannski fengum við bandarísku stelpurnar ekki nógu snemma inn. Við þurfum því miður aðeins meiri tíma til að líta aðeins betur út því á tímabili var þetta ekki gott.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×