Innlent

Segir al­var­legt hvernig Katrín tjáði sig um Per­sónu­vernd

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Helga Þórisdóttir hafði gegnt stöðu forstjóra Persónuverndar frá árinu 2015 þegar hún fór í leyfi vegna forsetaframboðsins.
Helga Þórisdóttir hafði gegnt stöðu forstjóra Persónuverndar frá árinu 2015 þegar hún fór í leyfi vegna forsetaframboðsins. Vísir/Vilhelm

Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi segir alvarlegt hvernig Katrín Jakobsdóttir mótframbjóðandi hennar og fyrrverandi forsætisráðherra talaði um Persónuvernd við Kára Stefánsson forstjóra ÍE í Covid-faraldrinum án þess að hafa rætt við forsvarsmenn Persónuverndar. 

Í viðtali í Forystusætinu, viðtalsþáttum Ríkisútvarpsins þar sem rætt er við forsetaframbjóðendur, rifjar Helga Þórisdóttir upp samskipti hennar við Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar og samskipti sem hann birti við Katrínu Jakobsdóttur þáverandi forsætisráðherra í Covid-faraldrinum. 

Viðtalið má nálgast hér, en umræðan hefst á tíundu mínútu. 

Áfall að forseti styddi einkafyrirtæki umfram Persónuvernd

„Það var líka ákveðið áfall fyrir okkur hjá Persónuvernd þegar við lentum í því að þáverandi forsætisráðherra ákvað að stíga fram og styðja frekar einkafyrirtæki, sem hafði hótað okkur málshöfðun, heldur en Persónuvernd, sem hefur það eina starf að fara að lögum. Og það gerðist í Covid-faraldrinum,“ segir Helga í viðtalinu. 

Þar sé hún að tala um Katrínu Jakobsdóttur, mótframbjóðanda hennar. Aðspurð segist hún ekki hafa átt í beinum orðaskiptum við hana.

Samskiptin við Kára í átakabúning

„Það var sem sagt forstjóri sterks einkafyrirtækis sem átti í slíkum samskiptum við hana og birti þau samskipti,“ segir Helga, og að um ræði Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Hann birti bréf Katrínar til sín í aðsendri grein á Vísi.

Bréf Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til Kára Stefánssonar, forstjóra ÍE, dagsett 5. janúar 2022. Kári birti bréfið í aðsendri grein á Vísi.

Þar hafi Katrín tjáð skoðun sína á framferði Persónuverndar án þess að hafa rætt við forsvarsmenn Persónuverndar um afstöðu þeirra í málinu. „Og það er dálítið alvarlegt vegna þess að við erum algjörlega sjálfstæð stofnun og eigum bara að fara að lögum,“ segir Helga Þórisdóttir í viðtalinu. 

Aðspurð segist hún þá hafa átt í samskiptum við Kára vegna málsins. „Þau hafa verið meira í átakabúningi af hans hálfu, eiginlega alla tíð. Og löngu áður en ég kom til starfa hjá Persónuvernd,“ segir Helga áður en þáttastjórnandi snýr umræðuefninu annað. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×