Sport

Aníta tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Aníta Hinriksdóttir tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn í dag.
Aníta Hinriksdóttir tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn í dag. @Icelandathletics

Hlaupakonan Aníta Hinriksdóttir varð í dag Norðurlandameistari í 1500m hlaupi kvenna.

Aníta kom í mark á tímanum 4:19,14 sem er hennar besti tími á tímabilinu. Hún kom í mark 0,6 sekúndum á undan hinni norsku Ingeborg Østgård sem hafnaði í öðru sæti.

Raunar skipuðu Norðmenn sér í annað, þriðja og fjórða sæti, en Kristine Lande Dommersnes varð þriðja á tímanum 4:20,70 og Selma Løchen Engdahl varð fjórða á 4:21, 68.

Emilia Lillemo frá Svíþjóð varð fimmta og Ina Halle Haugen frá Noregi varð sjötta. Hin sænska Neely Elned kláraði ekki hlaupið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×