Lífið

Mynda­veisla: Ekkert gefið eftir í for­seta­fögnuði ís­drottningarinnar

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Glæsilegur hópur frambjóðenda. Frá hægri: Steinunn Ólína, Halla Hrund, Helga Þóris, Ástþór Magnússon, Ásdís Rán, Halla Tómas, Katrín Jakobs, Eiríkur ingi og Viktor Trausta. 
Glæsilegur hópur frambjóðenda. Frá hægri: Steinunn Ólína, Halla Hrund, Helga Þóris, Ástþór Magnússon, Ásdís Rán, Halla Tómas, Katrín Jakobs, Eiríkur ingi og Viktor Trausta.  Silla Páls

Ásdís Rán Gunnarsdóttir forsetaframbjóðandi bauð meðframbjóðendum sínum á galakvöld á Iceland Parliament hótelinu í gærkvöldi. Þangað mættu frambjóðendur í sínu fínasta pússi og stemningin var vægast sagt hátíðleg. 

Athygli vakti í vikunni þegar Ásdís sagði að um ræddi glæsilegasta forsetafögnuð landsins. Þar myndu frambjóðendur koma saman og skála fyrir framboðunum. Strangar reglur yrðu um klæðaburð líkt og þekkist á galakvöldum erlendis og kæmu frambjóðendur til með að ganga rauðan dregil í anda Hollywood.

Kvöldinu var einungis ætlað frambjóðendum, fjölskyldum þeirra og einstaka boðsgestum. 

Allir frambjóðendurnir að Jóni Gnarr, Arnari Þór Jónssyni og Baldri Þórhallssyni undanskildum létu sjá sig.  Jón og Baldur voru báðir á ferð um landsbyggðina í gær en Felix Bergsson eiginmaður Baldurs hljóp í skarð eiginmannsins.  

Boðið var upp á veigar og léttar veitingar. Frambjóðendur fluttu ræður og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir tók lagið. 

„Ég er ótrúlega þakklát að fá að tilheyra þessum föngulega hóp og alveg frábært að allir hafi geta séð sér fært að taka tíma úr framboðs prógramminu og mæta á fögnuðinn. Stærsti partur forsetahlutverksins er að sjálfsögðu að vera góður gestgjafi og taka á móti fólki í fínum veislum og hátíðum hérlendis og erlendis, þetta er eitthvað sem ég er vel þjálfuð í svo ég ákvað að nýta það til að sameina hópinn, njóta og hafa gaman þar sem er nú stutt í kosningar,“ er haft eftir Ásdísi Rán í fréttatilkynningu. 

Myndir frá viðburðinum má sjá hér að neðan. 

Gestgjafinn sjálfur ávarpaði gesti.Silla Páls
Við fengum þá bara!Silla Páls
Alvöru gellur!Silla Páls
Ástþór James Bond-legur hérna. Silla Páls
Skvísur!Silla Páls
Felix Bergsson var staðgengill eiginmannsins sem var staddur á Snæfellsnesi. Hér er hann ásamt dóttur sinni og Baldurs, Álfrúnu Perlu Baldursdóttur.Silla Páls
Þessir menn eiga þetta sameiginlegt: Þeir eru báðir kvæntir konum sem eru í forsetaframboði og heita Halla.Silla Páls
Cowboy!Silla Páls
Ástþór Magnússon flutti ræðu. Silla Páls
Felix og Eiríkur Ingi brosmildir. Silla Páls
Einungis frambjóðendum, fjölskyldum þeirra og einstaka boðsgestum var boðið á fögnuðinn. Silla Páls
Halla Hrund og eiginmaðurinn Kristján Freyr Kristjánsson.Silla Páls
Steinunn Ólína söng lagið Besame Mucho með glæsibrag. Silla Páls
Halla Tómasdóttir og eiginmaðurinn Björn Skúlason.Silla Páls
Frambjóðendur völdu sér litríkan klæðnað fyrir tilefnið. Silla Páls
Sís!Silla Páls
Ástþór og Ásdís brostu sínu breiðasta. Silla Páls
Ásdís Rán ásamt Helgu Þórisdóttur og eiginmanninum Theódóri Jóhannssyni. Silla Páls
Einhverjir völdu sér glimmerklæðnað, enda mjög viðeigandi fyrir slíkt tilefni. Silla Páls
Viktoría, dóttir Ásdísar, lét sig ekki vanta.Silla Páls
Glæsileg rósataska Helgu stelur hér senunni. Hvar fær maður svona?Silla Páls
Katrín og Felix hátíðleg. Silla Páls
TikTok stjarnan Ezzi virðist hafa ratað á gestalistann. Silla Páls





Fleiri fréttir

Sjá meira


×