Skoðun

Kosningum frestað

Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Hrönn Guðmundsdóttir skrifa

Í dag átti að hefjast bindandi íbúakosning í Ölfusi um grótmulningsverksmiðju Heidelberg. Á bæjarstjórnarfundi í gær, sem var boðað var til með sólarhringsfyrirvara og engin gögn lágu fyrir, var ákveðið að fresta íbúakosningunum og taka þannig lýðræðislegan rétt af íbúum í Ölfusi. Við skiljum ekki á hvaða lagagrundvelli meirihluti bæjarstjórnar byggir sína fordæmalausu ákvörðun á, rökin virtust byggjast á þeirra eigin skoðunum. Það er grafalvarlegt mál að fresta kosningum og alveg víst að fulltrúar í minnihluta munu leita álit sérfróðs fólks á þessum gjörningi og fara lengra með málið komi í ljós vafi á lögmæti ákvörðunarinnar.

Rökstuðningur liggur þegar fyrir

Meirihlutinn og bæjarstjóri töluðu niður til First Water á fundinum fyrir það að hafa bent á það augljósa og krefja þau nú um rökstuðning fyrir sínum áhyggjum sem snúa að sambúð umhverfisvæns matvælaiðnaðar og risavaxinnar grjótmulningsverksmiðju. Áhyggjur sem snúa meðal annars að því að jarðsjórinn sem þau nota í kerin sín gæti mengast af skipaumferðinni sem á að koma að höfninni sem Heidelberg vill byggja. Sá rökstuðningur liggur fyrir nú þegar m.a. í umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands sem segir: ,,Í því sambandi bendir HSL á að fyrirhuguð höfn í Keflavík er staðsett á milli fiskeldisfyrirtækja þar sem áætluð er umfangsmikil vinnsla jarðsjávar til eldis laxfiska og því gæti mengunarslys í eða við þá höfn haft mikil áhrif á þá aðila sem vinna jarðsjó í nágrennin hafnarinnar. Embættið gerir því athugasemd við að í áhættumati vegna efnistökunnar sé ekki fjallað um áhættu og möguleg umhverfisáhrif vegna innsiglingar og uppskipunar efnis í fyrirhugaðri höfn”

Það hefur ekkert breyst

Með því að fresta boðuðum bindandi íbúakosningum er ljóst að meirihlutinn ber enga virðingu fyrir lýðræðinu og treystir ekki íbúum til að mynda sér skoðun á verkefninu. Það hafa engar forsendur breyst. Það sjónarmið hefur alltaf verið á lofti að fyrirætlanir Heidelberg um stórfellda námuvinnslu fari ekki saman með hreinni matvælaframleiðslu sem sveitarfélagið hefur haft sem stefnu í áraraðir. Það að fyrirtækið First Water hafi þurft að stíga fram með þessum hætti og benda á það augljósa breytir engu um fyrirhugaðar kosningar.

Áfellisdómur yfir vinnubrögðum meirihlutans í Ölfusi

Það var einnig ljóst þegar tekin var ákvörðun um að boða til bindandi kosninga að skipulagsferli verkefnisins var ekki lokið og fyrirséð að nýjar upplýsingar myndu líta dagsins ljós. Það kom ekki í veg fyrir að boðað yrði til kosninga og það að nýjar upplýsingar komi fram á heldur ekki að koma í veg fyrir að framfylgja boðuðum kosningum. Þetta mál er algjör áfellisdómur yfir vinnubrögðum meirihlutans í Ölfusi sem standa ekki undir þeirri ábyrgð sem þeim er falin með því að starfa fyrir hagsmuni almennings sem kjörnir fulltrúar, kosnir af íbúum en ekki fyrirtækjum. Þessi meirihluti er fullkomlega óhæfur.

Formaður bæjarráðs Ölfuss sagði í útvarpsviðtali daginn sem bréfið frá First Water kom fram 15. maí s.l.: ,,Ég treysti þeim fullkomlega til að vega og meta gögnin og kjósa eftir sinni sannfæringu”. Það á greinilega ekki lengur við, meirihlutinn í Ölfusi treystir ekki íbúum til að hafa vit fyrir sjálfum sér.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir er bæjarfulltrúi H lista og Hrönn Guðmundsdóttir er bæjarfulltrúi B lista



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×