Horfði ekki á kosningasjónvarpið en raulaði kumbaya Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt ekki kosningavöku líkt og venjan er hjá þeim sem eru í forsetaframbjóðendum. Þess í stað fór hún heim til vinar síns og hafði það rólegt. Slökkt var á sjónvarpinu og rauluðu gestir Kumbaya, My Lord. Innlent 2.6.2024 01:55
Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Friðjón Friðjónsson almannatengill og starfsmaður í kosningateymi Katrínar Jakobsdóttir segist telja alveg ljóst að ákveðinn hópur hafi kosið taktískt í forsetakosningunum í ár. Þá telur hann mögulegt að stór hópur kjósenda hafi ekki hugnast átökin í kringum Katrínu sem hafi þó alltaf keyrt sína baráttu á jákvæðni. Innlent 2.6.2024 01:49
Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta „Mín viðbrögð eru mjög góð. Mér finnst skilaboðin skýr. Kjósendur vilja augljóslega fá konu sem næsta forseta og ég sætti mig auðmjúkur við það.“ Innlent 2.6.2024 01:33
Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent 2.6.2024 01:08
Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í Reykjavík norður með 31,9 prósent en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 27,9 prósent. Þetta var tilkynnt rétt í þessu. Innlent 2. júní 2024 00:44
Katrín sér ekki eftir framboði sínu Katrín Jakobsdóttir segir niðurstöður í fyrstu tölum ekki svo fjarri því sem bent hafi til í síðustu skoðanakönnunum, þó fylgi Höllu Tómasdóttur komi á óvart. Innlent 2. júní 2024 00:25
Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði eftir fyrstu tölur úr Reykjavík Suður. Hún er með 32,5 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 28,9 prósent. Halla Hrund Logadóttir er með 12,95 prósenta fylgi. Innlent 2. júní 2024 00:22
Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Forsetaframbjóðandinn Eiríkur Ingi Jóhannsson segir ljóst að kjósendur hafi margir ákveðið að kjósa taktískt í forsetakosningunum í dag og að það hafi mögulega unnið gegn sér. Þegar fyrstu tölur voru lesnar í Suður- og Norðausturkjördæmi var uppskera Eiríks Inga heldur rýr. Innlent 2. júní 2024 00:01
Segir klútabyltinguna vera hafna „Ég er ótrúlega þakklát ekki síst í ljósi þess að þetta var brekka hjá okkur,“ segir Halla Tómasdóttir og vísar þar til upphafs kosningabaráttunnar þegar fylgi hennar mæltist í lágmarki. Innlent 2. júní 2024 00:01
Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Jón Gnarr yngri betur þekktur sem Nonni Gnarr útskrifast úr menntaskóla í dag og útskriftarveislan fór fram í sama salnum í Elliðarárdal og kosningavaka Jóns Gnarr eldri fer nú fram. Bjarki Sigurðsson fréttamaður tók Nonna Gnarr tali sem var alveg á því að dagurinn væri um hann. Lífið 1. júní 2024 23:25
Ofboðslega stolt af dóttur sinni Eygló Gunnþórsdóttir, móðir Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, segist mjög stolt af dóttur sinni og segir hana hafa staðið sig mjög vel í kosningabaráttunni. Lífið 1. júní 2024 23:07
Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði samkvæmt fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi. Hún er með 37 prósenta fylgi. Á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með rúm 19 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 16 prósent. Innlent 1. júní 2024 23:05
Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum úr Norðausturkjördæmi. Halla mælist með 35,42 prósent fylgi. Næst á eftir kemur Katrín Jakobsdóttir með 27 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 17 prósent. Talin hafa verið 3000 atkvæði. Auðir seðlar 12. Ógildir 4. Innlent 1. júní 2024 22:58
Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi eru stödd á kosningavöku óháðra á Nasa og bíða spennt eftir að fyrstu tölur berist. Lífið 1. júní 2024 22:40
„Nú er þessi sprettur á enda“ „Nú er þessi sprettur á enda. Ég horfi á markið og kjörstaðir að fara að loka. Við erum mætt hingað á Grand Hótel og það er mjög góð stemmning í mannskapnum.“ Lífið 1. júní 2024 22:22
Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Halla Hrund Logadóttir ávarpaði stuðningsmenn sína í kosningapartýi sínu í Björtuloftum í Hörpu í kvöld og þakkaði þeim fyrir 55 daga ferðalag sem hún sagði að myndi binda þau saman út ævina. Halla hvatti stuðningsmennina til að fara bjartsýnir inn í kvöldið í aðdraganda fyrstu talna. Innlent 1. júní 2024 22:07
Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Kosningasjónvarp Stöðvar 2 í opinni dagskrá og beinni útsendingu er staðurinn til að fylgjast með nýjustu tölum, heimsækja skemmtilegustu partýin og veita áhorfendum allar nauðsynlegar upplýsingar á spennandi kosningakvöldi. Innlent 1. júní 2024 21:04
Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Íslendingar hafa í dag valið sér forseta, og spennan er í algleymingi. Einn frambjóðandi mun standa uppi sem sigurvegari, og næsti forseti lýðveldisins, á meðan aðrir munu ekki hafa erindi sem erfiði. Þeir munu þó flestir freista þess að fagna með stuðningsfólki sínu í kvöld. Lífið 1. júní 2024 20:50
Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir forsetakosningarnar nú vera þær mest spennandi síðan í forsetakosningunum 1980 þegar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin. Hún segir að vísbendingar um góða kjörsókn geta boðað gott fyrir framboð Höllu Tómasdóttur og að myndun „tveggja turna“ geta leyst alls konar dýnamík úr læðingi þegar kemur að hegðun kjósenda. Innlent 1. júní 2024 20:31
Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa Kjósandi í Hafnarfirði ætlaði að skjótast í Lækjarskóla til að greiða forsetaframbjóðanda atkvæði sitt um sexleytið. Úr varð klukkustundarlöng bið eftir að komast í kjörklefann. Innlent 1. júní 2024 20:26
„Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Ingvar Örn Arngeirsson segir að betur megi huga að fólki sem glími við áskoranir þegar komi að kosningum. Einhverfur vinur hans treysti sér ekki til að fara inn í kjörklefa og gat af þeim sökum ekki kosið í dag. Innlent 1. júní 2024 19:57
Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Þorgerður Björnsdóttir, Selfyssingur á áttræðisaldri, varð fyrir miklum vonbrigðum þegar í ljós kom að hún var búin að kjósa í forsetakosningunum. Hún hafði þó ekki greitt atkvæði sjálf. Innlent 1. júní 2024 19:29
Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Mér finnst það góð pæling, að tala ekki bara um hvað maður hyggist kjósa heldur einnig hvers vegna. Aðeins snúnara í forsetakosningum vegna þess að embættið er ekki jafn pólitískt og t.d. Alþingi. Skoðun 1. júní 2024 18:07
Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Kjörsókn utankjörfundar var minni í forsetakosningunum nú samanborið við forsetaksoningarnar 2020, 2016 og 2012. Innlent 1. júní 2024 18:03
Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Það var mikið svekkelsi þegar Helgi Þorleifur Þórhallsson, nemi í fatahönnun við Háskóla Íslands, mætti á kjörstað í Mývatnssveit. Ástæðan var sú að hann fékk ekki að greiða atkvæði. Innlent 1. júní 2024 18:03