Tónlist Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, prettyboijokkó, hélt útgáfutónleika í tilefni af plötunni PBT 2.0 við Reykjavíkurhöfn síðastliðið föstudagskvöld. Um er að ræða níu laga plötu sem kom út 24. maí síðastliðinn. Tónlist 10.6.2024 16:49 Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Rafpoppararnir í hljómsveitinni Númer 3 hafa snúið bökum saman með Króla en saman hafa þeir nú gefið út sumarsmellinn Bjór. Einn liðsmaður sveitarinnar segir Króla ekki hafa getað hugsað um annað en lagið eftir að hafa fengið að heyra það í fyrsta sinn. Tónlist 7.6.2024 15:30 Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Hressasta hljómsveit landsins, stöllurnar í Heimilistónum blása til sumarkjólaballs í Gamla bíó í kvöld. Þar verða ýmsir leynigestir en vinkonurnar nefna sérstaklega eitt leynivopn sem mikil leynd hvílir yfir. Þær segjast aldrei hafa verið betri, segjast alls ekki vera eins og þær léku sig í Iceguys þáttunum og heita því að House mix af Kúst og fæjó sé í bígerð. Tónlist 7.6.2024 07:01 Yo-Yo Ma kemur til landsins Yo-Yo Ma, einn frægasti tónlistarmaður heims, er væntanlegur til landsins. Hann mun leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Hörpu og á sérstökum dúótónleikum í Eldborg með breska píanistanum Kathryn Stott í október. Tónlist 5.6.2024 11:46 „Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ „Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar stundum slæmar,“ segir tónlistarmaðurinn Kári Egilsson, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann kom fram á hátíðinni Great Escape. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðastliðið ár í lífi Kára en hann vinnur nú að annarri plötu sinni og frumsýnir splunkunýtt tónlistarmyndband hér í pistlinum. Tónlist 5.6.2024 11:31 Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Gervispilanir á streymisveitum á borð við Spotify koma niður á tekjuöflun íslenskra tónlistarmanna. Vandamálið er áberandi á topplista Spotify á Íslandi, þar sem algjörlega óþekktir erlendir listamenn skjóta reglulega upp kollinum með grunsamlega mikið streymi. Tónlist 5.6.2024 07:00 Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Ofurtvíeykið Bríet og Birnir fögnuðu útgáfu plötunnar 1000 orð með trylltu teiti á skemmtistaðnum AUTO síðastliðið föstudagskvöld. Margt var um manninn og virtist stemningin sjóðheit. Tónlist 4.6.2024 20:01 Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Matthías Eyfjörð er maðurinn að baki einum óvæntasta smelli ársins, laginu Halla T House Mix því sem Halla Tómasdóttir verðandi forseti Íslands steig trylltan dans við með stuðningsmönnum sínum þegar hún mætti í hús í kosningateiti sitt í Grósku um helgina. Lagið var spilað oft og mörgum sinnum í teiti Höllu af plötusnúðnum Danna Deluxe og hefur slegið í gegn. Líklegt má þykja að það verði spilað oft og mörgum sinnum næstu árin nú þegar ljóst er að Halla er næsti forseti. Tónlist 4.6.2024 09:01 Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi „Það gat verið erfitt að horfa til baka sem þolandi ofbeldis og nýta mína persónulega reynslu til að semja fyrir leikhúsið,“ segir tónlistarkonan Gugusar um lagið Merki sem hún var að senda frá sér. Lagið er úr sýningu Þjóðleikhússins Orð gegn orði sem hefur slegið í gegn. Tónlist 3.6.2024 14:26 „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni. Tónlist 1.6.2024 07:02 „Aldrei verið jafn stolt af mér“ „Ég trúi ekki að þetta ævilanga markmið sé loksins komið út,“ segir tónlistarkonan María Agnesardóttir eða MAIAA eins og hún kallar sig. MAIAA var að senda frá sér plötu og frumsýnir hér tónlistarmyndband við lag sitt Lovesick. Tónlist 31.5.2024 11:32 Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði Páll Óskar og Skrattar leiða saman hesta sína og koma í fyrsta sinn fram saman á sviði, sem og í sitthvoru lagi, á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina, 2-4 ágúst. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök. Tónlist 30.5.2024 14:28 „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta „Margir eru búnir að spyrja hvort við séum hætt saman út af þessu lagi en svo er ekki,“ segir tónlistarkonan Sigga Ózk sem var að senda frá sér popplagið BOY BOY. Blaðamaður ræddi við Siggu Ózk sem frumsýnir sömuleiðis hér myndband við lagið. Tónlist 30.5.2024 08:00 Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Feðgarnir og nafnarnir Þórhallur Þórhallsson og Laddi gefa í dag út sitt fyrsta lag saman. Að sögn Þórhalls er lagið á léttum nótum um íslensku gaslýsinguna sem felst í voninni um almennilegt sumar. Sumarlagið í ár að sögn Ladda. Tónlist 30.5.2024 07:01 Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA Listahátíðin LungA verður haldin í síðasta sinn í sumar, 15. - 21. júlí, á Seyðisfirði en 24 ár eru liðin frá því að hún var fyrst haldin. Hátíðin hefur tilkynnt flesta tónlistarmenn sem fram koma í ár en þar á meðal verður palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad sem vakti mikla athygli í Söngvakeppninni í ár. Tónlist 28.5.2024 14:20 „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Mínusmenn blása til útgáfuveislu næstkomandi fimmtudag í plötuversluninni Smekkleysu í tilefni af endurútgáfu platnanna Halldór Laxness og Jesus Christ. Sveitin mun troða upp ásamt amerísku rokksveitinni The Messthetics ásamt tveimur meðlimum goðsagnakenndu sveitarinnar Fugazi. Tónlist 28.5.2024 14:12 Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónlistarkonan María Agnesardóttir, jafnan þekkt sem MAIAA, hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi. Hún fagnaði nýrri EP plötu með pompi og prakt í skvísupartýi á Prikinu síðastliðinn föstudag þar sem þemað var stelpukraftur eða „girlpower“. Tónlist 27.5.2024 11:31 Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Tilætluðum tónleikum rappstjörnunnar Nicki Minaj í Manchester í gær var aflýst vegna óvæntrar handtöku stjörnunnar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Hún var handtekin vegna gruns um að vera með fíkniefni undir höndum og var á endanum sektuð og sleppt lausri. Tónlist 26.5.2024 10:07 Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, eða Dr. Gunni eins og hann er ávallt kallaður, gaf út nýtt lag á væntanlegri plötu, sem ber nafnið Í bríaríi. Hann lýsir laginu sem gleðilegu sumarrokki en það fjallar um sanna atburði sem gerðust á Norðurlandi. Tónlist 17.5.2024 10:00 Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks Iceland Airwaves hefur kynnt 22 nýja tónlistarmenn sem bætast við hóp þeirra flytjenda sem koma fram á tónlistarhátíðinni. Hátíðin fer fram 7.- 9. nóvember 2024 í miðbæ Reykjavíkur í 25. sinn. Tónlist 16.5.2024 11:59 „Þægileg blanda af von og trega“ „Þetta er svona lag þar sem bassalínan rífur í hálsmálið á þér og spyr spurninga. Þægileg blanda af von og trega,“ segir tónlistarmaðurinn Jónfrí um nýtt lag sem hann og Ólafur Bjarki voru að senda frá sér. Lagið heitir Gott og vel og voru þeir sömuleiðis að senda frá sér tónlistarmyndband sem er frumsýnt í spilaranum hér fyrir neðan. Tónlist 14.5.2024 11:30 Kom fram sem stórstjarna Útgáfutónleikar nýstirnisins Blossa fóru fram í Iðnó síðastliðið miðvikudagskvöld þar sem hann fagnaði útgáfu fyrstu smáskífu hans Le Blossi. Tónlist 13.5.2024 13:02 „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ „Mér er drull sama hvað ókunnugu fólki finnst en þú hlustar auðvitað á fólk sem er að tala við þig af því þeim þykir vænt um þig,“ segir rapparinn og listamaðurinn Erpur Eyvindarson. Hann hefur verið viðloðinn tónlistarsenuna síðastliðin 25 ár og fagnar þeim áfanga með stórtónleikum ásamt hljómsveit sinni Rottweiler í Laugardalshöll næstkomandi föstudagskvöld. Blaðamaður hitti Erp á heimili hans í Kópavogi þar sem hann fór yfir ferilinn og bauð upp á líbanskt kaffi. Tónlist 11.5.2024 07:01 Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon Laufey Lín mætti í gærkvöldi til bandaríska spjallþáttastjórnandans Jimmy Fallon í spjallþátt hans The Tonight Show. Þar tók hún lagið sitt Goddess og spilaði á píanó. Tónlist 10.5.2024 11:57 „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Ég þori í fyrsta skipti að vera persónuleg,“ segir tónlistarkonan Inki eða Ingibjörg Friðriksdóttir. Hún hefur komið víða við í tónlistarsköpun, smíðað sjálfspilandi hljóðfæri, gert fjölda hljóðinnsetninga og samið tónverk sem byggir á viðtölum við fyrri fanga Kvennafangelsisins. Tónlist 7.5.2024 10:00 „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ „Ég man að hafa hugsað um það hvað mér fannst þetta fáránlegt því maður á að vera ódauðlegur þegar að maður er tvítugur. Ég á að vera bara spennt fyrir lífinu og ekki hrædd. En núna er ég hrædd og okei hvað ætla ég að gera við það?“ segir tónlistarkonan Una Torfadóttir um það þegar hún greindist með krabbamein. Una hefur komið víða að í íslensku tónlistarlífi á undanförnum tveimur árum og var nú að senda frá sér plötuna Sundurlaus samtöl. Blaðamaður ræddi við Unu um hennar listrænu vegferð, ástina, fjölskylduna, veikindin, samband við sjálfa sig og fleira. Tónlist 4.5.2024 07:00 Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn Bandaríski gítarleikarinn Duane Eddy, sem af mörgum er talinn vera einn af upphafsmönnum rokksins, er látinn. Hann varð 86 ára gamall. Tónlist 2.5.2024 13:42 MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Bandaríska þungarokkssveitin MANOWAR er á leið til Íslands og mun koma fram á tónleikum í Silfurbergi í Hörpu þann 1. febrúar á næsta ári. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi þeirra „The Blood of Our Enemies Tour 2025.“ Tónlist 2.5.2024 12:37 „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ „Textarnir mínir fjalla um mína upplifun af ástinni og þar fer ekki á milli mála að ég sé að tala um stráka,“ segir tónlistarmaðurinn Torfi Tómasson eða TORFI. Hann sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu á sumardaginn fyrsta. Platan ber titilinn EITT og er tilraunakennd poppplata sem inniheldur hinsegin ástarljóð, samin fyrir hinsegin klúbba sem að fyrirfinnast ekki á Íslandi. Tónlist 29.4.2024 12:01 Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun „Áfram íslensk tónlist,“ sagði María Rut framkvæmdastjóri nýrrar tónlistarmiðstöðvar við opnun. Tónlistarmiðstöð var formlega opnuð þann 23. apríl í nýjum höfuðstöðvum við Austurstræti 5 í Reykjavík. Á eftir var opið hús þar sem gestir gátu hitt starfsfólk miðstöðvarinnar og skoðað nýjar höfuðstöðvar. Tónlist 24.4.2024 13:00 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 225 ›
Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, prettyboijokkó, hélt útgáfutónleika í tilefni af plötunni PBT 2.0 við Reykjavíkurhöfn síðastliðið föstudagskvöld. Um er að ræða níu laga plötu sem kom út 24. maí síðastliðinn. Tónlist 10.6.2024 16:49
Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Rafpoppararnir í hljómsveitinni Númer 3 hafa snúið bökum saman með Króla en saman hafa þeir nú gefið út sumarsmellinn Bjór. Einn liðsmaður sveitarinnar segir Króla ekki hafa getað hugsað um annað en lagið eftir að hafa fengið að heyra það í fyrsta sinn. Tónlist 7.6.2024 15:30
Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Hressasta hljómsveit landsins, stöllurnar í Heimilistónum blása til sumarkjólaballs í Gamla bíó í kvöld. Þar verða ýmsir leynigestir en vinkonurnar nefna sérstaklega eitt leynivopn sem mikil leynd hvílir yfir. Þær segjast aldrei hafa verið betri, segjast alls ekki vera eins og þær léku sig í Iceguys þáttunum og heita því að House mix af Kúst og fæjó sé í bígerð. Tónlist 7.6.2024 07:01
Yo-Yo Ma kemur til landsins Yo-Yo Ma, einn frægasti tónlistarmaður heims, er væntanlegur til landsins. Hann mun leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Hörpu og á sérstökum dúótónleikum í Eldborg með breska píanistanum Kathryn Stott í október. Tónlist 5.6.2024 11:46
„Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ „Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar stundum slæmar,“ segir tónlistarmaðurinn Kári Egilsson, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann kom fram á hátíðinni Great Escape. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðastliðið ár í lífi Kára en hann vinnur nú að annarri plötu sinni og frumsýnir splunkunýtt tónlistarmyndband hér í pistlinum. Tónlist 5.6.2024 11:31
Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Gervispilanir á streymisveitum á borð við Spotify koma niður á tekjuöflun íslenskra tónlistarmanna. Vandamálið er áberandi á topplista Spotify á Íslandi, þar sem algjörlega óþekktir erlendir listamenn skjóta reglulega upp kollinum með grunsamlega mikið streymi. Tónlist 5.6.2024 07:00
Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Ofurtvíeykið Bríet og Birnir fögnuðu útgáfu plötunnar 1000 orð með trylltu teiti á skemmtistaðnum AUTO síðastliðið föstudagskvöld. Margt var um manninn og virtist stemningin sjóðheit. Tónlist 4.6.2024 20:01
Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Matthías Eyfjörð er maðurinn að baki einum óvæntasta smelli ársins, laginu Halla T House Mix því sem Halla Tómasdóttir verðandi forseti Íslands steig trylltan dans við með stuðningsmönnum sínum þegar hún mætti í hús í kosningateiti sitt í Grósku um helgina. Lagið var spilað oft og mörgum sinnum í teiti Höllu af plötusnúðnum Danna Deluxe og hefur slegið í gegn. Líklegt má þykja að það verði spilað oft og mörgum sinnum næstu árin nú þegar ljóst er að Halla er næsti forseti. Tónlist 4.6.2024 09:01
Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi „Það gat verið erfitt að horfa til baka sem þolandi ofbeldis og nýta mína persónulega reynslu til að semja fyrir leikhúsið,“ segir tónlistarkonan Gugusar um lagið Merki sem hún var að senda frá sér. Lagið er úr sýningu Þjóðleikhússins Orð gegn orði sem hefur slegið í gegn. Tónlist 3.6.2024 14:26
„Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni. Tónlist 1.6.2024 07:02
„Aldrei verið jafn stolt af mér“ „Ég trúi ekki að þetta ævilanga markmið sé loksins komið út,“ segir tónlistarkonan María Agnesardóttir eða MAIAA eins og hún kallar sig. MAIAA var að senda frá sér plötu og frumsýnir hér tónlistarmyndband við lag sitt Lovesick. Tónlist 31.5.2024 11:32
Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði Páll Óskar og Skrattar leiða saman hesta sína og koma í fyrsta sinn fram saman á sviði, sem og í sitthvoru lagi, á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina, 2-4 ágúst. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök. Tónlist 30.5.2024 14:28
„BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta „Margir eru búnir að spyrja hvort við séum hætt saman út af þessu lagi en svo er ekki,“ segir tónlistarkonan Sigga Ózk sem var að senda frá sér popplagið BOY BOY. Blaðamaður ræddi við Siggu Ózk sem frumsýnir sömuleiðis hér myndband við lagið. Tónlist 30.5.2024 08:00
Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Feðgarnir og nafnarnir Þórhallur Þórhallsson og Laddi gefa í dag út sitt fyrsta lag saman. Að sögn Þórhalls er lagið á léttum nótum um íslensku gaslýsinguna sem felst í voninni um almennilegt sumar. Sumarlagið í ár að sögn Ladda. Tónlist 30.5.2024 07:01
Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA Listahátíðin LungA verður haldin í síðasta sinn í sumar, 15. - 21. júlí, á Seyðisfirði en 24 ár eru liðin frá því að hún var fyrst haldin. Hátíðin hefur tilkynnt flesta tónlistarmenn sem fram koma í ár en þar á meðal verður palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad sem vakti mikla athygli í Söngvakeppninni í ár. Tónlist 28.5.2024 14:20
„Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Mínusmenn blása til útgáfuveislu næstkomandi fimmtudag í plötuversluninni Smekkleysu í tilefni af endurútgáfu platnanna Halldór Laxness og Jesus Christ. Sveitin mun troða upp ásamt amerísku rokksveitinni The Messthetics ásamt tveimur meðlimum goðsagnakenndu sveitarinnar Fugazi. Tónlist 28.5.2024 14:12
Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónlistarkonan María Agnesardóttir, jafnan þekkt sem MAIAA, hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi. Hún fagnaði nýrri EP plötu með pompi og prakt í skvísupartýi á Prikinu síðastliðinn föstudag þar sem þemað var stelpukraftur eða „girlpower“. Tónlist 27.5.2024 11:31
Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Tilætluðum tónleikum rappstjörnunnar Nicki Minaj í Manchester í gær var aflýst vegna óvæntrar handtöku stjörnunnar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Hún var handtekin vegna gruns um að vera með fíkniefni undir höndum og var á endanum sektuð og sleppt lausri. Tónlist 26.5.2024 10:07
Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, eða Dr. Gunni eins og hann er ávallt kallaður, gaf út nýtt lag á væntanlegri plötu, sem ber nafnið Í bríaríi. Hann lýsir laginu sem gleðilegu sumarrokki en það fjallar um sanna atburði sem gerðust á Norðurlandi. Tónlist 17.5.2024 10:00
Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks Iceland Airwaves hefur kynnt 22 nýja tónlistarmenn sem bætast við hóp þeirra flytjenda sem koma fram á tónlistarhátíðinni. Hátíðin fer fram 7.- 9. nóvember 2024 í miðbæ Reykjavíkur í 25. sinn. Tónlist 16.5.2024 11:59
„Þægileg blanda af von og trega“ „Þetta er svona lag þar sem bassalínan rífur í hálsmálið á þér og spyr spurninga. Þægileg blanda af von og trega,“ segir tónlistarmaðurinn Jónfrí um nýtt lag sem hann og Ólafur Bjarki voru að senda frá sér. Lagið heitir Gott og vel og voru þeir sömuleiðis að senda frá sér tónlistarmyndband sem er frumsýnt í spilaranum hér fyrir neðan. Tónlist 14.5.2024 11:30
Kom fram sem stórstjarna Útgáfutónleikar nýstirnisins Blossa fóru fram í Iðnó síðastliðið miðvikudagskvöld þar sem hann fagnaði útgáfu fyrstu smáskífu hans Le Blossi. Tónlist 13.5.2024 13:02
„Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ „Mér er drull sama hvað ókunnugu fólki finnst en þú hlustar auðvitað á fólk sem er að tala við þig af því þeim þykir vænt um þig,“ segir rapparinn og listamaðurinn Erpur Eyvindarson. Hann hefur verið viðloðinn tónlistarsenuna síðastliðin 25 ár og fagnar þeim áfanga með stórtónleikum ásamt hljómsveit sinni Rottweiler í Laugardalshöll næstkomandi föstudagskvöld. Blaðamaður hitti Erp á heimili hans í Kópavogi þar sem hann fór yfir ferilinn og bauð upp á líbanskt kaffi. Tónlist 11.5.2024 07:01
Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon Laufey Lín mætti í gærkvöldi til bandaríska spjallþáttastjórnandans Jimmy Fallon í spjallþátt hans The Tonight Show. Þar tók hún lagið sitt Goddess og spilaði á píanó. Tónlist 10.5.2024 11:57
„Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Ég þori í fyrsta skipti að vera persónuleg,“ segir tónlistarkonan Inki eða Ingibjörg Friðriksdóttir. Hún hefur komið víða við í tónlistarsköpun, smíðað sjálfspilandi hljóðfæri, gert fjölda hljóðinnsetninga og samið tónverk sem byggir á viðtölum við fyrri fanga Kvennafangelsisins. Tónlist 7.5.2024 10:00
„Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ „Ég man að hafa hugsað um það hvað mér fannst þetta fáránlegt því maður á að vera ódauðlegur þegar að maður er tvítugur. Ég á að vera bara spennt fyrir lífinu og ekki hrædd. En núna er ég hrædd og okei hvað ætla ég að gera við það?“ segir tónlistarkonan Una Torfadóttir um það þegar hún greindist með krabbamein. Una hefur komið víða að í íslensku tónlistarlífi á undanförnum tveimur árum og var nú að senda frá sér plötuna Sundurlaus samtöl. Blaðamaður ræddi við Unu um hennar listrænu vegferð, ástina, fjölskylduna, veikindin, samband við sjálfa sig og fleira. Tónlist 4.5.2024 07:00
Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn Bandaríski gítarleikarinn Duane Eddy, sem af mörgum er talinn vera einn af upphafsmönnum rokksins, er látinn. Hann varð 86 ára gamall. Tónlist 2.5.2024 13:42
MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Bandaríska þungarokkssveitin MANOWAR er á leið til Íslands og mun koma fram á tónleikum í Silfurbergi í Hörpu þann 1. febrúar á næsta ári. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi þeirra „The Blood of Our Enemies Tour 2025.“ Tónlist 2.5.2024 12:37
„Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ „Textarnir mínir fjalla um mína upplifun af ástinni og þar fer ekki á milli mála að ég sé að tala um stráka,“ segir tónlistarmaðurinn Torfi Tómasson eða TORFI. Hann sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu á sumardaginn fyrsta. Platan ber titilinn EITT og er tilraunakennd poppplata sem inniheldur hinsegin ástarljóð, samin fyrir hinsegin klúbba sem að fyrirfinnast ekki á Íslandi. Tónlist 29.4.2024 12:01
Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun „Áfram íslensk tónlist,“ sagði María Rut framkvæmdastjóri nýrrar tónlistarmiðstöðvar við opnun. Tónlistarmiðstöð var formlega opnuð þann 23. apríl í nýjum höfuðstöðvum við Austurstræti 5 í Reykjavík. Á eftir var opið hús þar sem gestir gátu hitt starfsfólk miðstöðvarinnar og skoðað nýjar höfuðstöðvar. Tónlist 24.4.2024 13:00