Fótbolti

Napoli leiðir kapp­hlaupið en Juventus til­búið að láta Genoa fá tvo fyrir Albert

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Albert Guðmundsson er undir smásjá stærstu liða Ítalíu.
Albert Guðmundsson er undir smásjá stærstu liða Ítalíu. getty/Image Photo Agency

Svo virðist sem stærstu lið Ítalíu muni berjast um að kaupa Albert Guðmundsson í sumar. Íslenski landsliðsmaðurinn hefur átt afar gott tímabil með Genoa í vetur.

Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá því að Napoli sé sem stendur fremst í kapphlaupinu um Albert. 

Hann sé þó ekki eini kosturinn sem Napoli horfi til og framhaldið ráðist einnig af því hver næsti knattspyrnustjóri liðsins verður. Francesco Calzona stýrir Napoli og hefur gert síðan Walter Mazzari var rekinn í febrúar en er bara samningsbundinn út tímabilið. Rudi García byrjaði tímabilið sem stjóri Napoli en var látinn fara í nóvember á síðasta ári. Titilvörn Napoli hefur verið afleit en liðið er í 9. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Juventus er einnig með í baráttunni um Albert og samkvæmt Di Marzio er félagið tilbúið að láta Genoa fá tvo leikmenn fyrir íslenska landsliðsmanninn. 

Þetta eru miðjumennirnir Fabio Miretti og Enzo Barrenechea. Sá fyrrnefndi hefur leikið með Juventus allan sinn feril en sá síðarnefndi er á láni hjá Frosinone.

Albert hefur skorað fjórtán mörk í ítölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Aðeins Lautari Martínez hjá Inter (24 mörk), Dusan Vlahovic hjá Juventus (16) og Victor Osimhen hjá Napoli (15) hafa skorað meira.

Gneoa er í 11. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar þegar tveimur umferðum er ólokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×