Innlent

Hundrað milljarða fjár­festing í upp­námi

Jakob Bjarnar skrifar
Elliði Vignisson ætlar ekki að skipta sér af íbúafundum en hann gerir ráð fyrir því að íbúar velji rétt þegar þar að kemur, en nú styttist í að íbúar kjósi um skipulag sem gerir Heidelberg kleift að reisa sína mölunarverksmiðju og hefja starfsemi.
Elliði Vignisson ætlar ekki að skipta sér af íbúafundum en hann gerir ráð fyrir því að íbúar velji rétt þegar þar að kemur, en nú styttist í að íbúar kjósi um skipulag sem gerir Heidelberg kleift að reisa sína mölunarverksmiðju og hefja starfsemi. vísir/vilhelm/Egill

Eggert Þór Kristófersson forstjóri hefur, fyrir hönd First Water hf., ritað bæjarstjórn Þorlákshafnar afdráttarlaust bréf þar sem hann lýsir sig algjörlega andsnúinn því að mölunarverksmiðja Heidelberg rísi í næsta nágrenni við starfsemi fyrirhugaðar matvælaframleiðslu.

„Þar sem við erum að byggja upp hágæða matvælaframleiðslu á Laxabraut þá teljum við óásættanlegt að í sömu götu standi til að byggja mölunarverksmiðju sem fer alls ekki saman við matvælaframleiðslu né heldur að bygging hafnar á því svæði sem við erum að sækja jarðsjó,“ segir í bréfinu.

Þá kemur einnig fram að fyrir liggi fleiri verkefni sem eru í undirbúningi í matvælaframleiðslu á Laxabraut.

Bréf Eggerts Þórs til bæjarstjórnar Ölfuss er mjög afdráttarlaust, hann lýsir sig algjörlega andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi við hlið matvælaframleiðslu, þetta fer ekki saman.

„Og því er það okkar mat að mölunarverksmiðja eigi alls ekki heima þarna sem nú er fyrirhugað að halda íbúakosningu um samhliða forsetakosningum 1. júní 2023.“

Kosið um skipulag samhliða forsetakosningum

Já, til stendur að kjósa um málið samhliða forsetakosningum, skipulag bæjaryfirvalda sem gerir ráð fyrir starfsemi Heidelberg. Íbúafundur verður haldinn í kvöld um málið en það er býsna margt sem menn vilja setja út á varðandi fyrirhugaðar stórkarlalegar fyrirætlanir með mölunarverksmiðju Heidelberg í bænum, sem tengist umferðaröryggi, mengun og malarnámi bæði úr sjó og á landi.

Vísir ræddi stuttlega við Elliða Vignisson bæjarstjóra en hann er staddur úti í Portúgal. Hann sagðist ekki ætla að skipta sér mikið af fundahöldum, hann taldi íbúa færa um að mynda sér skoðun á málinu.

Vísir hefur bréfið undir höndum, sem sent var í gær, en First Water er að byggja laxeldi á landi við Laxabraut 15-29 í Þorlákshöfn. Um er að ræða framkvæmd fyrir rúmlega 100 milljarða á næstu 6 árum, sem mun vera stærsta einkaframkvæmd á Íslandi frá landnámi. Við erum því ekki að tala um neina smásmíði.

Matvælaframleiðsla og mölunarverksmiðja fari ekki saman

Markmið framkvæmdanna er skýrt, að framleiða hágæða lax þar sem seiðaeldi fer fram í fersku vatni, áframeldi fer fram í jarðsjó sem dælt er upp í gegnum 5 – 10 þúsund ára gömul hraunlög sem eiga að tryggja mikil gæði þeirrar vöru sem félagið er að framleiða.

Í bréfinu kemur fram að nafn félagsins vísi til þeirra gæða sem eru í jarðsjónum sem dælt er uppúr og mikilvægt sé að engin starfsemi fari fram nálægt starfseminni sem ógnað gæti starfsöryggi eða skapað hættu á mengun í sjónum þar sem félagið er með starfsemi.

Skjáskot af bréfinu sem sent var í gær. En það gæti sett bæjarstjórn Ölfuss í nokkurn vanda.

Tengdar fréttir

Segja valda­rán framið og kirkju að­vent­ista klofna

Tveir félagar í Kirkju sjöunda dags aðventista (KSDA) bera stjórn safnaðarins þungum sökum og segja að þar hafi verið framið valdarán. Þeir segja söfnuðinn klofinn en undir lúra milljarða samningar þar sem heilt fjall er mulið og selt úr landi.

Land­vernd skorar á sveitar­stjórnir að hafna námu­vinnslu

Landvernd hefur efnt til undirskriftasöfnunar þar sem skorað er á sveitarstjórnir Mýrdalshrepps og Ölfuss að hafna námuvinnslu á Mýrdalssandi og í Þrengslum með tilheyrandi mengandi efnisflutningi og náttúruspjöllum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×