Kælt niður í byrjun og svo búmm! Frægasta verkið eftir John Cage nefnist 4 mínútur og 33 sekúndur. Það felst í því að píanóleikari gengur fram á svið, sest við hljóðfærið og gerir svo ekkert í nokkrar mínútur. Síðan stendur hann upp, hneigir sig og gengur út. Gagnrýni 22.10.2024 07:01
DIMMA var flott en einhæf Þungarokkhljómsveitin DIMMA fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir. Hún blés til tónleika, ásamt Söngsveitinni Fílharmóníu og SinfoniuNord, í Eldborginni í Hörpu á föstudagskvöldið. Tónleikarnir höfðu áður verið haldnir í Hofi á Akureyri í sumar. Gagnrýni 15.10.2024 07:03
Speak No Evil: Pabbi er ekki með fulle fem Danska hrollvekjan Gæsterne kom út hér á landi fyrir u.þ.b. tveimur árum undir nafninu Speak No Evil. Hún vakti töluverða athygli og voru viðbrögð áhorfenda almennt mjög góð. Hollywood-fólk fór ekki varhluta af því og var ekki lengi að skella í eitt stykki endurgerð, sem heitir jú, Speak No Evil og er nú sýnd í kvikmyndahúsum. Gagnrýni 24.9.2024 08:02
Slæmt jafnvægi á milli Baggalúts og Sinfóníunnar Þegar ég var einstæður faðir og dóttir mín, sjö eða átta ára, var með mér í bílnum, þá spilaði ég oftar en ekki lagið Pabbi þarf að vinna í nótt. Það fjallar um drykkfelldan pabba sem segist þurfa að fara að vinna, en er auðvitað bara á leiðinni á barinn, „til að hitta mennina,“ „þótt mamma skelli hurðum.“ Þetta var fyrsta lagið sem ég heyrði með Baggalút og síðan þá hef ég verið aðdáandi sveitarinnar. Gagnrýni 18. júní 2024 10:02
Sturluð rödd gerði áheyrendur tryllta Þegar ég gekk út af tónleikum sópransöngkonunnar Lise Davidsen á laugardagskvöldið í Hörpu, kom til mín maður sem ég kannaðist ekki við. Hann spurði: „Hvernig skrifar maður eiginlega um svona?“ Ég svaraði: „Líklega bara með einu orði.“ Gagnrýni 4. júní 2024 07:02
The Lazarus Project: Varúð, veldur svefnleysi The Lazarus Project hefur snúið aftur og er nú öll önnur þáttaröðin komin inn á Stöð 2 +. Fyrsta sería heppnaðist mjög vel og gaf undirritaður henni fjórar stjörnur fyrir um ári síðan. Gagnrýni 1. júní 2024 08:56
Ekkert mjálm í Unu Torfa og Sinfó Jónas Sen skrifar um tónleika Unu Torfadóttur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 16. maí. Gagnrýni 22. maí 2024 07:00
Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Ég hitti mann nýlega sem kvartaði yfir því hve margar íslenskar söngkonur rauli. „Ekki Björk, sko – hún SYNGUR – en svo margar aðrar syngja bara í hálfum hljóðum. Það er varla að þær séu með raddbönd.“ Gagnrýni 14. maí 2024 07:00
Love Lies Bleeding: Ekið af hraðbraut og út í skurð Bíó Paradís sýnir nú kvikmyndina Love Lies Bleeding sem fjallar um Lou (Kristen Stewart), starfskonu á lúinni líkamsræktarstöð í suðurríkjum Bandaríkjanna á 9. áratugi síðustu aldar. Inn á stöðina gengur Jackie (Katy O'Brien), vöðvastæltur umrenningur í atvinnuleit. Gagnrýni 9. maí 2024 07:01
Mislukkuð sýning í Borgarleikhúsinu með góðum sprettum Söngleikurinn Eitruð lítil pilla, sem er saminn ofan í fræga plötu Alanis Morisette og Glen Ballard frá tíunda áratugnum, var frumsýndur í febrúar. Gagnrýni 23. apríl 2024 07:00
Knox Goes Away: Gamlir en ekki sigraðir Kvikmyndin Knox Goes Away var tekin til sýningar í Sambíóunum sl. föstudag. Þar leikstýrir Michael Keaton og leikur leigumorðingja sem fær greiningu þess efnis að hann sé með Creutzfeldt-Jakob, taugasjúkdóm sem dregur fólk oftast til dauða innan við ári eftir greiningu. Gagnrýni 21. apríl 2024 09:49
Ripley: Listaverk Tom Ripleys fullkomnað Skáldsaga Patriciu Highsmith The Talented Mr. Ripley hefur verið sem segull fyrir kvikmyndagerðarfólk allt frá því að hún kom út árið 1955. Nú er það Steven Zailian sem tekst á við Tom, Dickie og Marge í sjónvarpsþáttaformi, en Netflix frumsýndi nýlega þættina átta. Gagnrýni 16. apríl 2024 09:03
Blue Lights: Fljúgandi start Allir sex þættir bresku þáttaraðarinnar Blue Lights dúkkuðu nýlega upp í sarpi Ríkissjónvarpsins en fyrir þá sem kjósa enn að fylgjast með í línulegri dagskrá eru þeir sýndir á þriðjudögum og hafa fengið íslenska titilinn Bláu ljósin í Belfast. Í þessum pistli er fjallað um seríuna í heild sinni. Gagnrýni 6. apríl 2024 11:40
Tröllaukinn kór valtaði yfir pínulítinn píanóleikara „Stóð við krossinn mærin mæra, mændi á soninn hjartakæra.“ Á þessum orðum hefst þýðing Matthíasar Jochumssonar á Stabat mater. Gagnrýni 19. mars 2024 07:00
True Detective: Draugagangur á Dalvík Fjórða þáttaröð True Detective hefur nú runnið sitt skeið og allir sex þættirnir komnir í spilara Stöðvar 2+. Skoðanir hafa verið skiptar um þetta True Detective innlegg mexíkóska leikstjórans Issa López, svo mikið að legið hefur við netóeirðum á Twitter (X) og Instagram. Gagnrýni 6. mars 2024 07:48
Víkingur tryllti og stillti Ég sá brandara á Facebook nýlega. Tveir gamlir karlar standa þétt saman og annar þeirra heldur á mótmælaskilti. Undir myndinni má lesa: „Verkfall sembalstillingamanna.“ Og á skiltinu stendur: „Við höfum verið samningslausir frá 1782.“ Gagnrýni 20. febrúar 2024 07:01
Fangelsi, fyllerí og fjandinn sjálfur Um blúsgítarleikarann Robert Johnson gekk sú saga fjöllum hærra að hann hefði selt djöflinum sál sína. Hann átti að hafa ákallað Kölska einhverja nóttina við afviknar krossgötur, og beðið hann um að verða frábær gítarleikari í skiptum fyrir sál sína. Vissulega varð hann afburðagítarleikari, en naut sín ekki lengi. Hann varð bara 27 ára og var myrtur að sögn af afbrýðisömum eiginmanni. Djöfsi var fljótur að hrifsa til sín sál hans. Gagnrýni 13. febrúar 2024 07:01
The Holdovers: Eftirlegukindur á heimavist The Holdovers fjallar um hóp nemenda bandarísks heimavistarskóla sem neyðast til að dvelja þar yfir jól, þar sem fjölskyldur þeirra geta ekki tekið á móti þeim. Með þeim þurfa að vera starfsmenn og fellur það skaut óvinsælasta kennara skólans að sitja yfir eftirlegukindunum. Gagnrýni 11. febrúar 2024 11:19
Njósnarinn sagði nei, Ragga sagði já Yfirmaður bækistöðvar CIA í Berlín á tímum Kalda stríðsins var tónlistargagnrýnandi í hjáverkum. Hann hét Henry Pleasants. Ein af bókunum sem hann skrifaði bar nafnið The Agony of Modern Music. Hún kom út árið 1955. Líkt og titillinn gefur til kynna, er hún mikill bölmóður um tónlist samtímans. Gagnrýni 30. janúar 2024 10:01
Poor Things: Bravó! Undirritaður var farinn að halda að allar myndirnar sem líklegar eru til að berjast um Óskarsstyttuna í ár væru hálfgerðar luðrur. Kemur svo ekki Grikkinn Jorgos Lanthimos (How to Kill a Scared Deer og The Favourite) og bjargar deginum með kvikmynd sinni Poor Things, en hún hlaut ellefur tilnefningar til Óskarsverðlauna í gær. Gagnrýni 24. janúar 2024 09:01
Verbúðarstemning hjá Pálma Gunnarssyni Tónlist er eins og tímavél. Ótrúlegt er hve lag sem maður hlustaði á á ákveðnu skeiði, og heyrir svo aftur að einhverjum tíma liðnum, getur kallað fram sterkar tilfinningar sem tengjast þessu tímabili. Það er eins og ormagöng opnist og sogi mann aftur í tímann. Gagnrýni 22. janúar 2024 09:50
The Iron Claw: Endurtekningarsöm bræðrabylta Titill The Iron Claw vísar í auðkennisbragð fjölbragðaglímukappans Fritz Von Erich, sem var mikill sigurvegari í þeirri „íþrótt“ um miðja síðustu öld. Kvikmyndin fjallar að mestu leyti um syni hans fjóra sem fetuðu í fótspor hans og voru áberandi í glímheiminum á 9. og 10. áratugnum og alla þá harmleiki sem á þeim dundu. Gagnrýni 21. janúar 2024 08:16
Saltburn: Hinn hæfileikaríki herra Quick Saltburn er nýjasta kvikmynd Emerald Fennell, leikstýru einnar eftirtektarverðustu kvikmyndar ársins 2022, A Promising Young Woman. Það er Amazon-streymisveitan Prime sem frumsýndi hana rétt fyrir jól. Gagnrýni 7. janúar 2024 09:35
Pabbamontið er ekki innistæðulaust Pabbamont á Facebook getur verið sætt, en það getur líka farið yfir strikið. Ég er ekki saklaus í þeim efnum. Gagnrýni 13. desember 2023 07:02