Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Aðskilnaðarsinnar sem hafa myndað meirihluta á þingi í Katalóníuhéraði á Spáni virðast ætla að missa þingmeirihluta sinn í kosningum sem fóru fram í dag. Nær öll atkvæði hafa verið talin og útlit er fyrir sigur sambandssinnaðra sósíalista. Erlent 12.5.2024 23:33
„Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Lögmaður konu, sem vísa á úr landi á morgun og er alls ekki ferðafær samkvæmt læknisvottorði, segir það algjörlega forkastanlegt ef stjórnvöld svari ekki beiðni þess efnis að brottvísun verði frestað á grundvelli vottorðins. Innlent 12.5.2024 22:03
Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Halla Hrund er bæði í fortíð og framtíð í framsetningu framboðs síns. Jón Gnarr er í karakter, Baldur með áferðarfallega ímynd og Katrín eini frambjóðandinn sem forðast fánalitina. Þetta segir sérfræðingur í myndmáli. Innlent 12.5.2024 21:00
Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Kviknað hefur í bragga í húsnæði Austurljóss á Egilsstöðum. Slökkviliðið var kallað út klukkan 11:20 og slökkvistarf enn í gangi. Innlent 12.5.2024 12:45
Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Hluti fjölbýlishús í borginni Belgorod í Rússlandi hrundi í morgun. Ráðamenn í Rússlandi hafa haldið því fram að húsið hafi orðið fyrir braki úr úkraínskum eldflaugum sem Rússar skutu niður. Erlent 12.5.2024 12:32
Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Það stendur mikið til á Patreksfirði því um hvítasunnuhelgina verður haldin þar hátíð íslenskra heimildarmynda. Auk þess verður boðið upp á plokkfiskveislu og limbókeppni. Innlent 12.5.2024 12:29
Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar alvarlegt ofbeldisbrot í uppsveitum Árnessýslu. Til rannsóknar er meint frelsissvipting, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Þrír karlmenn og ein kona hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 12.5.2024 11:45
Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Lögreglan á Suðurlandi er með til rannsóknar meinta frelsissviptingu, líkamsárás, og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Þrír karlmenn og ein kona sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 12.5.2024 10:02
Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 12.5.2024 09:41
„Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Hörður Þór Rúnarsson var sjö ára gamall þegar hann varð fyrir kynferðislegri misnotkun af hálfu eldri manns. Maðurinn varð uppvís að því að hafa einnig brotið á tveimur öðrum drengjum. Þar sem maðurinn var frá upphafi talinn andlega vanheill og þar með ósakhæfur fór málið aldrei fyrir dóm. Innlent 12.5.2024 09:00
Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Fyrsti maðurinn sem fékk grætt í sig svínsnýru á meðan hann var lifandi er látinn, um tveimur mánuðum eftir að nýrun voru grædd í hann og rúmum fimm vikum eftir að hann var útskrifaður af sjúkrahúsi. Richard Slayman fékk tvö erfðabreytt nýru úr svíni á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum í mars og var vonast til þess að nýrun myndu duga honum í minnst tvö ár. Erlent 12.5.2024 08:50
Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Gífurlega umfangsmikil mótmæli fóru fram í Tíflis í Georgíu í gær. Þar hafa fjöldi mótmælenda komið saman á undanförnum vikum vegna umdeildra laga sem yfirvöld vinna að. Mótmælin virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi. Erlent 12.5.2024 08:05
Grunaðir um rán í miðbænum Þrír menn eru grunaðir um vopnað rán í miðbænum. Rannsókn málsins miðar vel að sögn lögreglu. Innlent 11.5.2024 22:09
Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Ályktun um aukinn rétt Palestínu til þátttöku í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna var samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi á neyðarfundi þingsins í dag. Ísland kaus með ályktuninni Erlent 11.5.2024 20:56
Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Prófessor í stjórnmálafræði segir allt útlit fyrir tveggja hesta kapphlaup fram að kjördegi. Katrín Jakobsdóttir og Halla Hrund Logadóttir mælast jafnar í nýjustu könnun Gallup. Kappræður Ríkisútvarpsins fyrir rúmri viku virðast hafa haft talsverð áhrif á hug kjósenda. Innlent 11.5.2024 19:55
Hundruð létust í flóðum Hunduð létust í flóðum í Baghlan-héraði í norðurhluta Afganistan í dag og er óttast að tala látinna muni hækka. Erlent 11.5.2024 18:56
Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Ísraelsher hefur fyrirskipað þúsundum að yfirgefa Rafah en búist er við því að herinn ráðist þangað inn af fullum þunga á næstunni. Erlent 11.5.2024 18:05
Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Lögreglan var kölluð til þegar upp úr sauð milli dýraverndunarsinna og ábúenda á sveitabæ í Borgarfirði í gær. Dýraverndarsinnar fóru með hey til til kindanna og ábúandi kom og ógnaði þeim með spjóti. Mikið hefur verið fjallað um slæman aðbúnað sauðfjár á bænum síðustu daga. Innlent 11.5.2024 15:33
Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Kappræður Ríkisútvarpsins þann 3. maí virðast hafa haft talsverð áhrif á hug kjósenda. Frammistaða frambjóðenda hafði þó meiri áhrif á konur en karla og meiri áhrif á ungt fólk en eldra. Innlent 11.5.2024 13:44
Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Sálfræðingur, sem vinnur í áfallateymi á bráðamóttöku Landsspítalans, segir starfið mjög erfitt en á sama tíma gefandi því það séu forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins, en að það taki á. Innlent 11.5.2024 13:31
Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa Starfsmenn Reykjavíkurborgar skoða nú hvort unnt sé að breyta fyrirkomulagi varðandi frístund barna á sumrin. Foreldrar í Reykjavík hafa kallað eftir auknu fjármagni og breyttu fyrirkomulagi við úthlutun plássa. Nú ríki fyrirkomulagið „fyrstur kemur fyrstur fær“ sem þýði að þau sem þurfi mest á plássinu að halda fái ef til vill ekkert pláss, séu þau of sein að sækja um. Innlent 11.5.2024 12:44
„Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Lögmaður kvenna sem vísa á úr landi eftir helgi segir skjóta skökku við að íslensk stjórnvöld ætlist til þess að fórnarlömb mansals stigi fram og segi sögu sína, þegar viðbrögð ríkisins séu þau að handtaka fórnarlömbin og senda þau úr landi. Konurnar segjast allar hafa verið fórnarlömb mansals áður en þær komu hingað til lands. Innlent 11.5.2024 12:24
Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Lögmaður þriggja kvenna sem vísa á úr landi eftir helgi segir skjóta skökku við að íslensk stjórnvöld ætlist til þess að fórnarlömb mansals stigi fram og segi sögu sína, þegar viðbrögð ríkisins séu þau að handtaka fórnarlömbin og senda þau úr landi. Konurnar segjast allar hafa verið fórnarlömb mansals áður en þær komu hingað til lands. Innlent 11.5.2024 11:45
Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Heitavatnslaust er í Breiðholti eftir að hitaveitulögn virðist hafa sprungið þar í morgun. Íbúar eru beðnir um að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatn kemst á að nýju. Innlent 11.5.2024 11:29