Fótbolti

Svein­dís Jane á skotskónum í sigur­leik

Siggeir Ævarsson skrifar
Sveindís Jane á fleygiferð í leikn gegn Wolfsburg fyrr á tímabilinu
Sveindís Jane á fleygiferð í leikn gegn Wolfsburg fyrr á tímabilinu vísir/Getty

Sveindís Jane Jónsdóttir virðist vera búin að ná sér algjörlega af meiðslunum sem hún hefur verið að glíma við síðustu vikur en hún lék allan leikinn í dag þegar Wolfsburg lagði Werder Bremen.

Sveindís lét sér ekki nægja að spila allan leikinn heldur skoraði hún annað mark liðsins og lagði upp það þriðja skömmu síðar en lokatölur leiksins urðu 0-3 Wolfsburg í hag.

Wolfsburg situr nokkuð þægilega í öðru sæti deildinnar með 50 stig en Bayern Munchen hefur þegar tryggt sér titilinn.

Þetta var þriðja mark Sveindísar í vetur í tíu leikjum og þá hefur hún einnig lagt upp þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×