Sport

NFL lið samdi við ein­eggja tví­bura sem spila sömu stöðu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jadon og Jaxon Janke eru hér með Garret Greenfield, sem var liðsfélagi þeirra í South Dakota State háskólaliðinu.
Jadon og Jaxon Janke eru hér með Garret Greenfield, sem var liðsfélagi þeirra í South Dakota State háskólaliðinu. Getty/ Justin Tafoya

Tvíburarnir Jadon og Jaxon Janke fá nú tækifæri hjá NFL-liði þrátt fyrir að hafa ekki verið valdir í nýliðavalinu í vor.

Houston Texans hefur samið við þá báða og þeir fá tækifæri til að sýna sig og sanna í æfingabúðum nýliða hjá félaginu.

Það sem gerir þetta enn sérstakara eru að þeir eru eineggja tvíburar og spila líka sömu stöðu. Í raun munar bara einum staf á nafni þeirra. Annar er með d í nafinu sínu en hinn er með x.

Strákarnir stóðu sig mjög vel með South Dakota State University í háskólaboltanum. Þeir eru eldsnöggir útherjar. Þeir gera sér líka vel grein fyrir því að þeir eru nú í mikilli samkeppni við hvor annan um að komast inn í NFL-deildina.

„Við erum alltaf að reyna að gera betur en hinn. Það skiptir ekki máli hvort að það er fótbolti, körfubolti, frjálsar íþróttir eða hafnabolti. Nefndu íþróttina og við erum klárir í keppni við hvorn annan,“ sagði Jadon við ABC News.

„Tvíburar blómstra og standa sig best þegar þeir eru nálægt hvorum öðrum eða þegar þeir eru saman. Ef þú slítur þá í sundur og setur þá aðskilda í nýtt umhverfi, þá sýna tölurnar það að þeir gefa eftir,“ sagði Jaxon.

Þeir hafa líka verið í sama liði síðan í öðrum bekk og þekkja ekkert annað.

„Þannig er mál með vexti að rétt áður en við samþykktum að semja við Texans þá fékk Jaxon tilboð frá Seattle. Hann var nálægt því að ganga frá því,“ sagði Jadon. Tilboðið kom hins vegar frá Houston Texans og þeir völdu það.

„Umboðsmaðurinn okkar segist aldrei hafa fengið svona samningsboð á sínum ferli og hann er búinn að vera í þessu í tuttugu ár. Mamma okkar var einstaklega ánægð með það að við værum að fara í þetta saman,“ sagði Jaxon.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×