Viðskipti innlent

Freyr ráðinn til Eflingar

Árni Sæberg skrifar
Freyr Rögnvaldsson er ný upplýsingafulltrúi Eflingar.
Freyr Rögnvaldsson er ný upplýsingafulltrúi Eflingar. Efling

Freyr Rögnvaldsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Eflingar stéttarfélags. Hann er stjórnmálafræðingur með mikla reynslu af fjölmiðlun.

Í fréttatilkynningu um ráðninguna segir að Freyr sé stjórnmálafræðingur að mennt, frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Lundi. Hann hafi síðustu sautján ár unnið sem blaðamaður á ýmsum fjölmiðlum, meðal annars Heimildinni, Stundinni, DV, Eyjunni, Bændablaðinu og á 24 stundum. 

Freyr hafi hlotið blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands árið 2018 fyrir rannsóknarblaðamennsku þegar hann rannsakaði og greindi eignarhald auðmanna á íslenskum bújörðum. Þá hafi hann einnig í tvígang verið tilnefndur til verðlaunanna.

Sömuleiðis hafi Freyr sinnt kynningarstörfum og upplýsingagjöf á sínum starfsferli, meðal annars þegar hann starfaði hjá kynningardeild Bændasamtakanna. Þá hafi hann verið upplýsingafulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar árið 2017.

Spenntur fyrir starfinu

Í tilkynningu segir að Freyr sé fullur tilhlökkunar yfir því að taka til starfa fyrir félagsfólk Eflingar og verkafólk á Íslandi. „Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum í baráttu Eflingarfélaga fyrir bættum kjörum og aðbúnaði, sem og að koma því á framfæri hversu gríðarlega mikilvægt hlutverk félagsfólks Eflingar er í íslensku samfélagi,“ er haft eftir honum.

„Ráðning Freys er liður í eflingu samskipta og miðlunar upplýsinga af félagslegu og faglegu starfi Eflingar stéttarfélags. Freyr mun með reynslu sinni reynast félaginu og starfsfólki mikilvægur liðsfélagi í því ferli,“ er haft eftir Perlu Ösp Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Eflingar.

Haft er eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, að með ráðningu Freys verði enn frekar skerpt á upplýsingagjöf félagsins 

„Efling er annað stærsta stéttarfélag landsins og langstærsta félag verkafólks. Öflug upplýsingagjöf um grundvallarmikilvægi okkar er lykilatriði í baráttu félagsins fyrir efnahagslegu réttlæti.“

Freyr er giftur Snærós Sindradóttur, listfræðingi og fjölmiðlakonu, og þau eiga fjögur börn. Fjölskyldan er um þessar mundir búsett í Búdapest í Ungverjalandi. Freyr segist munu fyrst um sinn sinna starfinu í fjarvinnu, með tölvuna og símann að vopni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×