Samstarf

Polestar 4 kominn í Polestar Reykja­vík – umhverfisvænasti bíll Polestar

Brimborg
Það er vel þess virði að líta við í Polestar Reykjavík og sjá Polestar 2, Polestar 3 og Polestar 4 saman í salnum.
Það er vel þess virði að líta við í Polestar Reykjavík og sjá Polestar 2, Polestar 3 og Polestar 4 saman í salnum.

Nú er Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík. Haldin var sérstök forsýning fyrir Polestar eigendur og áhugafólk um leið og færi gafst enda búið að bíða hans með talsverðri eftirvæntingu. Stutt er síðan Polestar sendi frá sér fréttatilkynningu um að Polestar 4 væri umhverfisvænasti bíll þeirra til þessa, með lægra kolefnisspor en Polestar 2, þegar sá bíll kom fyrst á markað.

Það má segja að Polestar brúi bilið milli hlaðbaksins Polestar 2 og jeppans Polestar 3. Með drægni upp á 580 km, 544 hestöfl og 686 Nm í tog. Hann er fjórhjóladrifinn, sem hljómar vel í eyrum Íslendinga. Hann er 3.8 sekúndur upp í 100 og getur dregið á eftir sér tvö tonn og veghæðin er 16.6 sm.

Polestar 4
Polestar 3

Stór plús að ekki tekur nema 30 mínútur að hlaða úr 10% upp í 80%, eða rétta á meðan fólk stekkur inn og drekkur einn kaffibolla.

Hulda Margrét

Rennilegar línur og mikið pláss

Polestar 4 er rúmgóður að innan og er mitt á milli Polestar 2 og 3  í stærð. Athygli vekur að enginn afturgluggi er í Polestar 4 heldur koma myndavélar í stað hans. Þessi hönnun eykur á innanrýmið og farangursrýmið í bílnum. Þakglugginn léttir einnig verulega á innanrýminu og vel fer um farþegana aftur í.

Þrír bílar komnir út á árinu

Þetta eru mikil tímamót hjá Polestar þar sem vöruúrvalið stækkar úr einum bíl upp í þrjá á þessu ári. Það er vel þess virði að líta við í Polestar Reykjavík og sjá Polestar 2, Polestar 3 og Polestar 4 saman í salnum.

Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×