Fjölmenn mótmæli
Tugir þúsunda mótmæltu á götum Tiblisi í Georgíu í gær vegna umdeilds lagafrumvarps sem mótmælendur segja vega að frelsi einstaklinga og fjölmiðla í landinu. Ef það nær fram að ganga verða samtök og fyrirtæki, sem fá meira en fimmtung af fjármagni sínu frá öðru landi, að skilgreina sig sem erlend félög.