Atvinnulíf

Krökkunum finnst hálf hall­æris­legt að mamman kunni Friends þættina utan að

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Berglind Óskarsdóttir fata- og fylgihlutahönnuður í Mílanó segir krökkunum hennar þremur finnast hálf hallærislegt hversu vel hún kann Friends þættina utan af. Sem hún horfði oft á sem unglingur og elskar enn.
Berglind Óskarsdóttir fata- og fylgihlutahönnuður í Mílanó segir krökkunum hennar þremur finnast hálf hallærislegt hversu vel hún kann Friends þættina utan af. Sem hún horfði oft á sem unglingur og elskar enn.

Berglind Óskarsdóttir, fata- og fylgihlutahönnuður hefur verið búsett ásamt þremur börnum sínum í Mílanó á Ítalíu síðastliðin átta ár. Best finnst henni að drekka morgunbollann úti í garði, hlustandi á fuglana synga, lesa fréttir og skrolla á Instagram.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég stilli klukkuna alltaf 6:45 en ligg yfirleitt til klukkan sjö, síðustu ár hef ég vanið mig á hugleiða á þessum tíma og leggja áherslu á jákvæðni og þakklæti áður en ég stend upp. Það setur vissulega tóninn inn í daginn.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Núna þar sem börnin eru öll orðin svo stór þá eru morgnarnir mun auðveldari en áður fyrr, allir sjá um sig sjálfir og eru búnir að undirbúa sig kvöldið áður. En ég vek dóttir mína og vill hún alltaf knúsast aðeins og það er dýrmætur tími.

Svo fæ ég mér kaffibolla, les fréttir og skrolla instagram, helst út í garði og hlusta á fuglana syngja. 

Það er orðið svo hlýtt og eru það mikil forréttindi að vera á jarðhæð með friðsælan garð inn í stórborginni.“

Hvaða bíómynd eða sjónvarpsþátt gastu horft á endalaust og aftur og aftur sem unglingur?

Ég gat og get enn horft á Friends endalaust. 

Núna horfi ég á þá með krökkunum mínum og þeim finnst smá hallærislegt hvað ég kann þættina utan af.“

Berglind elskar að drekka morgunbollann sinn úti í garði þar sem sólin skín og fuglarnir syngja. Á Ítalíu er skylda að fylgja krökkum að skólahliðinu í skólann og sækja þau og tekur vinnudagurinn og allt skipulag svolítið mið af því hvenær hún sækir dóttur sína.

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég hef starfað í vörumerkjaþróun síðastliðið ár þar sem ég hef aðallega verið að vinna fyrir ítalskt „high jewellery“ skartgripa fyrirtæki. Þar starfa ég helst við eftirvinnslu ljósmynda, grafíska hönnun, undirbúning á viðburðum og myndatökum, ég bý til markaðsefni fyrir samfélagsmiðla og allskonar skemmtileg en ólík verkefni. Það hefur verið dýrmæt reynsla og mjög áhugavert að læra um alla skartgripina, efnisvið þeirra og virði.

Ég tek einnig að mér freelance verkefni úr mismunandi áttum og finnst mér alltaf gaman að vinna slík verkefni fyrir íslensk fyrirtæki og einstaklinga. Til að mynda var ég nýlega að skila af mér verkefni fyrir UAK þar sem ég hannaði ráðstefnupokann fyrir félagið í ár.

Heimurinn er mun opnari fyrir fjarvinnu í dag og finnst mér frábært að geta verið í tengslum við heimalandið mitt á þennan hátt.

Árið 2019 gaf ég út mitt eigið merki, Bibi &Bella en þar hanna ég vandaðar yfirhafnir á stelpur. Því miður hafði covid áhrif á framvinduna á þessu verkefni og hef ég því verið eingöngu að sinna sérpöntunum fyrir sérstök tilefni en ég stefni á að taka þetta concept lengra og er í frítíma mínum að endurvekja það.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Á Ítalíu er nauðsynlegt að fylgja börnunum í skólann þegar þau eru í barnaskóla og lokar skólinn hliðunum kl 8:40. Einnig er nauðsynlegt að sækja börnin og getur ekki hver sem er sótt, aðeins þeir semeru sérstaklega skráðir og verður viðkomandi að vera orðinn 18 ára. Ég fylgi því þessu stranga fyrirkomulagi,að minnsta kosti á meðan yngsta barnið er enn á þessu skólastigi. Því byrjar vinnudagurinn minn eftir að ég hjóla með Stellu í skólann.

Þegar ég kem svo heim aftur sest ég niður við tölvuna og vinn verkefni dagsins þar tilað strákarnir mínir koma heim úr skólunum sínum sem er um klukkan þrjú. Þá fara önnur verkefni heimilins í gang þar til ég sæki Stellu á ný.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég slekk alltaf ljósin klukkan tíu og reyni að halda mig við að fara að sofa þá en það endar yfirleitt aðeins síðar því mér finnst gott að fá smá tíma fyrir sjálfa mig þegar krakkarnir eru sofnaðir.“


Tengdar fréttir

Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu

Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, segist þora að fullyrða að partígestir að austan kunni upp til hópa allir að dansa við ákveðinn indverskan popp slagara. 

„Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“

Brynhildur Lilja Björnsdóttir forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar, segist svo vel gift A manneskju að hún fær rjúkandi heitt rjómakaffi í rúmið frá eiginmanninum á hverjum morgni. Og D-vítamín.

Vandræðalega kvöldsvæfur framkvæmdastjóri

Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar stofnandi indó sparisjóðs segir morgnana besta tíma dagsins en þá situr hann með fjögurra ára syni sínum og deilir með honum ristabrauðsneið áður en aðrir á heimilinu vakna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×