Lífið samstarf

Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið

Ásbjörn Ólafsson ehf
Sumarlínan 2024 er væntanleg í verslanir helstu söluaðila Moomin Arabia á næstu dögum.
Sumarlínan 2024 er væntanleg í verslanir helstu söluaðila Moomin Arabia á næstu dögum.

Hlýnandi veðri fylgir loforðum nýja sumarlínu frá MoominArabia. Í ár inniheldur sumarlínan ekki eingöngu hið hefðbundna matarstell heldur einnig skemmtilegar textílvörur sem henta vel fyrir sundferðirnar í sumar ásamt uppfærslu á vatnsglösunum sígildu sem nú skarta nýjum sumarlegum myndskreytingum.

Moomin sumarlínan gerir þér kleift að njóta útiverunnar á þinn eftirlætis máta – hvort sem það er við sjóinn, í sumarbúðstaðnum, garðinum eða á ströndinni. 

Aldrei nóg af sultu á Múmínpönnukökunum

Á Moomin sumarlínunni í ár, Berjatíð (e. Berry Season), eru sumarminningarnar varðveittar og sumaruppskerunni fagnað. Mildir og glaðlegir litir í salvíugrænu, lillabláu og ferskjutón flytja hugann aftur til sælustunda liðinna sumarsíðdaga þegar skugginn í garðinum veitti kærkomið hlé frá sólinni.

Myndskreytingin er aðlögun Moomin Arabia hönnunarteymisins á tveimur myndasögum eftir Tove Jansson, Eldabuska Múmínmömmu (1956) og Samviskusami Múmínálfurinn (1958).

Á myndskreytingunum má sjá Múmínfjölskylduna í óðaönn við að brugga síder og búa til sultu úr rauðum og svörtum skógarberjum úr garðinum. Jafnvel þó næga sultu sé að finna í kjallara Múmínhússins stenst Múmínmamma ekki mátið að nýta fersku berin sem best – Múmínálfarnir kunna svo sannarlega að meta pönnukökur með sultu! 

Múmínsnáði og Snorkstelpan nota nýstárlega leið til þess að kremja berin undir fótum sér í kari.

Sumarlínan í ár heldur sama þræði og sumarlínur fyrri ára, þar sem Múmínálfarnir eiga gæðastundir saman í náttúrunni við hinar ýmsu sumarathafnir. Sumarkrúsin 2024 og diskurinn eru einstök viðbót í sumarlínu Moomin með ferska nýja litasamsetningu sem undirstrikar gleðina sem fylgir hlýnandi veðri og ómetanlegra samverustunda í sumarfríinu.

Allir um borð! Sumartextílvörurnar kalla þig að sjávarsíðunni

Textíllínan inniheldur fallega myndskreytt handklæði, barnaslá og taupoka

Ertu klár í sumarið? Nýju Moomin strandvörurnar gera alla fjölskylduna klára í endurnærandi dag á ströndinni eða í sumarbústaðnum. Línan inniheldur fallega myndskreytt handklæði, barnaslá og taupoka sem henta sérstaklega vel í heita pottinn og sundferðirnar í sumar. Líkt og aðrar Moomin Arabia textílvörur eru nýju sumarvörurnar gerðar úr 100% lífrænni bómull.

Sumarstundum er best deilt með ástvinum – Moomin glösin fá uppfært útlit

Ef þú átt Múmínkrúsir úr þessum fyrri sumarlínum eru nýju glösin tilvalin viðbót í safnið.

Í sumar er enn fremur von á uppfærslu á Moomin glerglösunum vinsælu en nýjar myndskreytingar endurtaka myndefni frá eldri Sumarlínum: Sumarfrí (2018), Kvöldsund (2019), Afslöppun (2020), Samvera (2021), Veiðiferð (2022) og Garðveisla (2023). Glösin eru í tilvalinni stærð og hönnun sem passa vel í bæði hendur barna sem fullorðinna ásamt því að setja litríkan svip á borðhaldið hvort sem það er hversdags eða til hátíðarbrigða.

Sumarlínan 2024 er væntanleg í verslanir helstu söluaðila Moomin Arabia á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×