Lífið

Mætti í eftir­­­partý og verður eftir í Mal­­mö

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Joost Klein var spáð nokkuð góðu gengi á úrslitakvöldi Eurovision sem fram fór í gær. Þó varð ekkert úr því þar sem honum var vikið úr keppni vegna meintrar ógnandi hegðunar í garð starfsmanns EBU.
Joost Klein var spáð nokkuð góðu gengi á úrslitakvöldi Eurovision sem fram fór í gær. Þó varð ekkert úr því þar sem honum var vikið úr keppni vegna meintrar ógnandi hegðunar í garð starfsmanns EBU. AP/Martin Meissner

Hollenski tónlistarmaðurinn Joost Klein mætti var í eftirpartýi úrslitakvölds Eurovision-keppninnar í gærkvöldi, þrátt fyrir að hafa verið vísað úr keppninni fyrr um daginn. Hann verður þá eftir í Malmö, þar sem keppnin fór fram, þrátt fyrir að aðrir úr hollenska föruneytinu haldi heim á leið.

Aftonbladet greinir frá því að Klein, sem var vísað úr keppni í gær í kjölfar meintrar ógnandi hegðunar í garð starfsmanns EBU, Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva, hafi fengið sér nokkra drykki í gleðskapnum sem var haldinn eftir úrslitakvöldið.

Haft er eftir Twan van de Nieuwenhuizen, sem fer fyrir hollenska hópnum, að Klein hafi skemmt sér vel og  spjallað við vini. 

Hollenski fjölmiðillinn NOS greinir frá því að Klein muni ekki ferðast heim til Hollands með hópnum sem fylgdi honum út, og hefur eftir AVROTROS, stöðvarinnar sem sendir út Eurovision í Hollandi. Þó er greint frá því að Klein sé frjáls ferða sinna og ekkert komi í veg fyrir að hann yfirgefi Svíþjóð, kjósi hann það.

Tvennum sögum fer af atvikinu

AVROTROS mótmælti brottrekstri Klein úr keppninni harðlega, og sagði hana úr samhengi við það sem honum væri gefið að sök. Hann hefði „hreyft sig með ógnandi hætti í garð kvikmyndatökukonu“ en ekki slegið til hennar. 

Noel Curran, forstjóri EBU, hefur hins vegar sagt við sænska fjölmiðla að umrædd kvikmyndatökukona hafi aðra sögu að segja.

Var spáð fínasta gengi

Klein var spáð nokkuð góðu gengi með lag sitt Europapa. Skömmu fyrir keppnina töldu veðbankar að hann væri líklegur til að hafna í 8. sæti keppninnar. 

Þó getur verið varasamt að leggja ofurtrú á slíkar spár, þar sem veðbankar töldu mestar líkur á að Króatar bæru sigur úr býtum og að Ísrael yrði í öðru sæti. Svo fór þó ekki, heldur sigraði Svisslendingurinn Nemo, með lagið The Code.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×