Veður

Þurrt suð­vestan­til og hiti á landinu að tólf stigum

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tólf stig þar sem verður mildast syðst.
Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tólf stig þar sem verður mildast syðst. Vísir/Vilhelm

Lítil lægð mun dóla sér í rólegheitum austur með suðurstönd landsins í dag sem gerir að það að verkum að vindáttin verður norðlæg.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði kaldi eða strekkingur vestantil en annars hægari vindur. Skúrir á Suðausturlandi og lítilsháttar rigning eða jafnvel slydda um landið norðanvert, en yfirleitt þurrt suðvestanlands.

Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tólf stig þar sem verður mildast syðst.

„Á morgun, þriðjudag er svo útlit fyrir fremur hægan vind á landinu og víða þurrt og bjart veður, en stöku skúrir við suðurströndina. Hiti breytist lítið,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Vestlæg eða breytileg átt, víða 3-10 m/s og bjartviðri, en stöku skúrir syðst. Hiti 6 til 12 stig að deginum.

Á miðvikudag: Austan og suðaustan 3-10 og dálitlar skúrir, en lengst af þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag og föstudag: Austlæg eða breytileg átt 5-13 og dálítil væta öðru hvoru, einkum vestantil. Heldur svalara.

Á laugardag og sunnudag (hvítasunnudagur): Útlit fyrir austlæga eða breytilega átt. Skúrir á stöku stað og hiti 2 til 10 stig, mildast suðvestantil.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×