Enski boltinn

Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjár­málum

Sindri Sverrisson skrifar
Callum Hudson-Odoi og félagar í Nottingham Forest væru búnir að gera nóg til að halda sér uppi, ef ekki væri fyrir refsingu vegna brota á fjármálareglum.
Callum Hudson-Odoi og félagar í Nottingham Forest væru búnir að gera nóg til að halda sér uppi, ef ekki væri fyrir refsingu vegna brota á fjármálareglum. Getty/Jon Hobley

Áfrýjun enska knattspyrnufélagsins Nottingham Forest bar ekki árangur og nú er ljóst að félagið þarf að sætta sig við fjögurra stiga refsinguna sem liðið hlaut, í ensku úrvalsdeildinni.

Forest hlaut dóm sinn um miðjan mars en ákvað að áfrýja honum í von um að missa ekki stigin fjögur. Það var aðeins annar sigur liðsins í síðustu ellefu leikjum.

Forest var refsað fyrir að brjóta reglur ensku úrvalsdeildarinnar um fjárhagslegt aðhald, með taprekstri sem var 34,5 milljónum punda meiri en leyfilegt var að mati óháðrar aganefndar.

Samkvæmt reglum deildarinnar mega félög tapa samtals 105 milljónum punda yfir þriggja ára tímabil, eða 35 milljónum punda á leiktíð. Forest lék hins vegar í næstefstu deild þar til liðið komst upp í úrvalsdeild 2022, og að mati nefndarinnar hefði félagið því að hámarki mátt tapa 61 milljón punda á árunum þremur fram til 2023. Tapið nam hins vegar 95 milljónum punda.

Síðustu leikirnir í fallbaráttunni:

Nott. Forest (29 stig, -18 mörk): Chelsea (h), Burnley (ú).

Luton (26 stig, -29 mörk): West Ham (ú), Fulham (h).

Burnley (24 stig, -35 mörk): Tottenham (ú), Nottingham Forest (h).

Sheffield United er fallið og tvö lið til viðbótar falla.

Forest er ekki eina liðið sem refsað hefur verið í vetur vegna brota á fjármálareglunum því samtals hafa átta stig verið dregin af stigafjölda Everton vegna slíkra brota. Everton er hins vegar búið að bjarga sér frá falli, í 15. sæti með 37 stig eða 11 stigum frá fallsæti, en væri í 13. sæti ef stigin hefðu ekki verið tekin af liðinu.

Forest er núna með 29 stig og væri að sama skapi öruggt um áframhaldandi veru í efstu deild ef ekki væri fyrir fjögurra stiga refsinguna. Niðurstaðan gefur bæði Luton (26 stig) og Burnley (24 stig) von um að komast úr fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir. Forest er með langbestu markatöluna af þessum þremur liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×