Dort­mund í úr­slit eftir sigur í París

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mbappé tókst ekki að þenja netmöskvana í kvöld.
Mbappé tókst ekki að þenja netmöskvana í kvöld. Matthias Hangst/Getty Images

Borussia Dortmund gerði sér lítið fyrir og sló París Saint-Germain út í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dortmund, sem situr í 5. sæti heima fyrir, vann báða leikina gegn verðandi Frakklandsmeisturum PSG 1-0 og einvígið þar með 2-0.

Dortmund var með 1-0 forystu fyrir leik kvöldsins  var því eilítið varnarsinnað frá upphafi leiks í kvöld. Það virtist ætla að koma í bakið á þeim strax í upphafi þegar Kylian Mbappé átti þrumuskot sem Gregor Kobel varði vel í marki gestanna. Þar fyrir utan fengu heimamenn hins vegar ekki nein almennileg marktækifæri í fyrri hálfleik. 

Dortmund fékk að sama skapi eitt gott færi en þar vann Gianluigi Donnarumma fyrir kaupi sínu í marki heimaliðsins og staðan markalaus í hálfleik. 

Þar lifnaði yfir leiknum en eftir aðeins tveggja mínútna leik átti Warren Zaire-Emery skot sem endaði í stönginni. Örskömmu síðar gerðist svo það sem París mátti ekki við. Gestirnir fengu hornspyrnu en segja má að föst leikatriði hafi oftar en ekki verið banabiti Parísarliðsins í Meistaradeild Evrópu.

Julian Brandt sendi boltann inn á teig og á einhvern óskiljanlegan hátt var gamla brýnið Mats Hummels einn á auðum sjó. 

Hann skallaði boltann af öllu afli á markið og Donnarumma kom engum vörnum við, staðan orðin 0-1 og gestirnir með tveggja marka forystu í einvíginu. Þá varð Hummels um leið þriðji elsti leikmaður sögunnar til að skora í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Gonçalo Ramos fékk fínt færi í liði heimamanna ekki löngu seinna en inn vildi boltinn ekki. Sömu sögu var að segja af langskoti Nuno Mendes sem endaði í marksúlunni hægra megin. 

Þá varði Kobel aftur vel frá Mbappé þegar tíu mínútur lifðu leiks en aðeins þremur mínútum áður hafði Hummels skorað sitt annað mark - aftur eftir fast leikatriði - en að þessu sinni var hann vel fyrir innan og rangstaða dæmd.

Mbappé setti boltann í slánna þegar skammt var til leiksloka eftir að Kobel lenti í vandræðum með að handsama boltann. Sama hvað heimamenn reyndu þá tókst þeim einfaldlega ekki að finna glufur á gula veggnum. Mbappé setti boltann í slánna þegar skammt var til leiksloka.

Lokatölur í París 0-1 og Dortmund er því á leið í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir að sigra París Saint-Germain 2-0 samanlegt. 

Í úrslitum mætir Dortmund annað hvort löndum sínum í Bayern München eða þá Real Madríd. Staðan í því einvígi er 2-2 en þau mætast annað kvöld á Santiago Bernabéu-vellinum í Madríd. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira