Lífið

Tókst ekki að selja í öll aug­lýsinga­plássin á RÚV í kvöld

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hera Björk er áttunda á svið í kvöld í Malmö.
Hera Björk er áttunda á svið í kvöld í Malmö. Vísir/EPA

Ekki tókst að selja í öll auglýsingaplássin sem í boði eru á RÚV á meðan fyrri undankeppni Eurovision fer fram í Malmö í kvöld. Færri auglýsingar hafa selst fyrir keppnina en búist var við. 

Fjölmargir hafa hvatt til sniðgöngu. Frá þessu er greint í frétt á vef RÚV í dag.

Fram hefur komið að kostnaður RÚV við Söngvakeppnin, undankeppni Eurovision á Íslandi, nam um 125 milljónum króna. Innkoma úr símakosningu úr Söngvakeppninni skilaði um 37 milljónum sem er um þriðjungur af kostnaði Söngvakeppninnar. Við það bætast svo tekjur af auglýsingasölu og miðasölu á undanúrslitakvöldin, dómararennsli og úrslitakvöldið.  

Ekki hefur komið fram hvað þátttaka Íslands í Söngvakepninni og Eurovision mun kosta samanlagt í ár en í fréttum um keppnina í fyrra kom fram að þá áætlaður heildarkostnaður við Söngvakeppnina og Eurovision var um 150 milljónir króna. Í frétt á vef RÚV sagði að undanfarin ár hafi keppnin komið út á núlli og að tekjur af auglýsingum, kostunum, miðasölu og símakosningu hafi staðið undir kostnaði.

Hvetja til sniðgöngu

Fjöldi hefur hvatt til sniðgöngu vegna þátttöku Ísraels í keppninni í ár og framgöngu þeirra á Gasa frá því í október á síðasta ári og fyrir það.

Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, ákváðu fyrr á árinu að meina Ísrael ekki þátttöku í keppninni. Sú ákvörðun vakti furðu margra, í ljósi þess að Rússlandi hefur verið meinuð þátttaka í keppninni frá innrás Rússa í Úkraínu árið 2022.

Mikill viðbúnaður er við tónlistarhöllina í Malmö þar sem keppnin fer fram.Vísir/EPA

Keppnin hefst klukkan 19 í kvöld og hefur viðbúnaður verið aukinn í Malmö vegna bæði keppninnar og vegna mótmælafunda sem skipulagðir hafa verið vegna hennar og stríðsins á Gasa.

Hera Björk Þórhallsdóttir keppir fyrir Íslands hönd í kvöld og flytur lagið Scared of Heights. Hún er númer átta í lagaröð kvöldsins. Engar líkur eru taldar á því að Hera Björk komist áfram í aðalkeppnina sem fer fram á laugardaginn.


Tengdar fréttir

Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld

Það er Eurovision í kvöld, Hera Björk stígur á stokk en víst er að afstaða Ríkisútvarpsins, að taka þátt þrátt fyrir að Ísrael sé með, hefur sett margan starfsmanninn í bobba.

Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru

Fleiri eru svartsýnir á gott gengi Íslands í Eurovision söngvakeppninni í ár heldur en bjartsýnir. Leita þarf aftur til ársins 2018 þegar Ari Ólafs keppti fyrir Íslands hönd til þess að finna álíka fjölda þeirra sem telja að Ísland muni hafna í einu af neðstu sætunum.

Tróð upp í Norræna partýinu

Hið svokallaða Norræna Eurovision-party fór fram í Malmö í dag. Hera Björk, auk keppenda hinna norrænu landanna, tróð upp í partýinu. Hún flutti bæði Scared of Heights, framlagið í ár, auk lagsins Je ne sais quoi, sem hún flutti í Eurovision árið 2011. 

Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision

Sænsk löggæsluyfirvöld hafa aukið viðbúnað í Malmö áður en Eurovision-vikan hefst, bæði vegna keppninnar og mótmælafundanna sem hafa verið boðaðir í borginni á sama tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×