Góð gildi og staðfesta Höllu Hrundar Þegar sú hugmynd kom upp að skora á Höllu Hrund Logadóttur í forsetaframboð, var mín fyrsta hugsun hvílík gjöf það yrði til okkar Íslendinga gæfi hún kost á sér. Halla Hrund hefur alla þá kosti sem prýtt getur góðan forseta. Skoðun 19.5.2024 12:31
Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Helga Þórisdóttir segist muna mjög vel eftir föstudeginum fjórtánda janúar 2022, eins og það hafi gerst í gær, þegar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskar erfðagreiningar, birti samskipti hans við Katrínu Jakobsdóttur þáverandi forsætisráðherra. Innlent 19.5.2024 12:25
Halla Hrund eða Katrín? Það er orðið nokkuð ljóst að þær eru tvær sem koma til með að berjast um embætti forseta Íslands. Því miður er Steinunn Ólína úr leiknum og ég held að bæði Baldur og Halla Tómasdóttir hafi ekki heldur mikla möguleika á að ná miklu meira fylgi. Skoðun 19.5.2024 11:01
Birni Bjarnasyni svarað Björn Bjarnason er lagður af stað í skógarferð þar sem hann virðist hafa í hyggju að reyna að ná höggi á undirritaðan. Skoðun 18. maí 2024 11:01
„Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Jóni Gnarr þykir sérkennilegt að forsetaframbjóðendum hafi ekki verið boðið í bústað forseta Íslands á Bessastöðum. Þetta kom fram í forsetakappræðum á Stöð 2 síðastliðið fimmtudagskvöld. Innlent 18. maí 2024 09:01
Baldur Þórhallsson er vitur og vís Ég hef fylgst með rannsóknum og fræðastörfum Baldurs Þórhallssonar undanfarin ár og hrifist af þeirri nálgun og sýn sem hann hefur varðandi mannréttindi og alþjóðamál. Baldur hikar ekki við að kalla Ísland smáríki, jafnvel örríki í óþökk nokkurra karla í stjórnkerfi landsins sem reyna að fela smæðina og spila sig gjarnan stóra á heimavelli og á alþjóðavísu. Skoðun 18. maí 2024 07:01
Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi hefur aldrei borðað kjúkling og gæðir sér þess í stað á blómkáli. Steinunn fór eitt sinn út úr húsi og heilsaði hvölum sem kölluðu á hana á bjartri sumarnóttu úr Steingrímsfirði. Lífið 18. maí 2024 07:01
Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Allir frambjóðendurnir sex sem tóku þátt í kappræðum Stöðvar 2 sögðust tilbúnir að taka á móti stuðningsmönnum við heimili sín ef þeir ná kjöri sem forseti. Arnar Þór Jónsson sagðist geta séð yfir þúsundir manna á túninu heima hjá sér. Lífið 17. maí 2024 22:11
Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Kosningabaráttan fyrir forsetakosningarnar hefur verið lífleg og á köflum skrautleg, að dómi Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra. Hann segist hafa tilfinningu fyrir hvern hann ætli að kjósa en vill ekki gefa það upp til að gera kosningarnar ekki enn pólitískari en ella. Innlent 17. maí 2024 19:27
Dregur saman með efstu frambjóðendum Ekki er tölfræðilega marktækur munur á fylgi þriggja efstu frambjóðendanna til forseta í nýrri skoðanakönnun Gallup. Fylgi Katrínar Jakobsdóttur og Höllu Hrundar Logadóttur minnkar milli kannana en Halla Tómasdóttir sækir á. Innlent 17. maí 2024 18:39
Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Í kjölfar kappræðna á Stöð2 þar sem aðeins útvöldum forsetaframbjóðendum var boðið að tjá sig um stjórnskipan landsins á meðan öðrum reynslumeiri var úthýst, hefur deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst vakið athygli á því að forsetaframbjóðendur sem þar komu fram hafi talað af vanþekkingu um utanríkisstefnu og stjórnskipan Íslands. Skoðun 17. maí 2024 17:30
Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju „Mér finnst mjög mikilvægt að forseti sýni frumkvæði á sviði utanríkismála en auðvitað verður það að gerast innan ramma utanríkisstefnunnar og í samráði við stjórnvöld, sitjandi ríkisstjórn á hverjum tíma.“ Innlent 17. maí 2024 14:05
„Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Þessi orð eru mér ógleymanleg úr fyrstu forsetakosningunum sem ég man eftir. Skoðun 17. maí 2024 14:01
Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segir mikilvægt að forseti Íslands sé aldrei meðvirkur með ráðandi öflum. Alþingi megi aldrei upplifa það að afgreiðsla laga á Bessastöðum sé eins og sjálfsafgreiðsla á bensínstöð. Innlent 17. maí 2024 13:24
Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ „Nú er til dæmis mál sem brennur mjög augljóslega á ungu fólki í dag og ætti ekki að hafa farið framhjá neinum; umhverfis- og loftslagsmálin. Ég er búinn að vera að standa í þessari kosningabaráttu núna í einhverjar vikur og ég hef aldrei verið spurður út í það.“ Innlent 17. maí 2024 10:30
Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Umræður frambjóðenda til embættis forseta Íslands á Stöð 2 í gær afhjúpuðu vandræðalega vanþekkingu eða alvarlegt hugsunarleysi margra þeirra þegar kemur að mikilvægum alþjóðamálum. Skoðun 17. maí 2024 09:31
Baldur vinsælasta plan B Baldur Þórhallsson er sá frambjóðandi sem flestir myndu kjósa í forsetakosningunum ef sá frambjóðandi sem aðspurðir segjast ætla að kjósa, væri ekki í framboði. Innlent 17. maí 2024 08:26
Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Þrátt fyrir að aðeins tveir frambjóðendur í forsetakappræðum Stöðvar 2 í gærkvöldi segðust berum orðum vera félagar í þjóðkirkjunni lýstu þeir sig allir tilbúna til þess að vernda kirkjuna og eiga við hana gott samstarf. Innlent 17. maí 2024 07:01
Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi segir vanvirðingu þegar talað er um fóstur eða barn í móðurkviði sem frumuklasa. Umhugsunarefni sé hve margar fóstureyðingar séu framkvæmdar hér á landi árlega. Fullt af fólki væri tilbúið að veita þeim börnum sem fæddust gott líf. Innlent 16. maí 2024 22:49
Einhver í herberginu segi ekki satt Halla Tómasdóttir segir augljóst að einhver þeirra sex forsetaefna sem tóku þátt í kappræðum á Stöð 2 í kvöld hafi tröll á sínum snærum sem ati aðra auri. Einhver þeirra sé því ekki að segja satt. Innlent 16. maí 2024 21:03
„Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Frambjóðendur til forseta lýstu almennt andstöðu við vopnakaup fyrir Úkraínu í kappræðum á Stöð 2 í kvöld. Þeir lögðu áherslu á hlutleysis- og friðarstefnu en fyrrverandi forsætisráðherra benti á að Íslandi væri þó ekki hlutlaus þjóð. Innlent 16. maí 2024 20:52
Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Katrín Jakobsdóttir tekur forystuna á ný samkvæmt nýrri könnun Maskínu en þó er ekki marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur. Halla Tómasdóttir er síðan í mikilli sókn og rúmlega tvöfaldar fylgi sitt. Innlent 16. maí 2024 18:32
Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Sex efstu forsetaframbjóðendurnir samkvæmt könnunum mætast í kappræðum á Stöð 2 klukkan 18:55. Kappræðurnar verða í beinni útsendingu og opinni dagskrá. Innlent 16. maí 2024 18:06
Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Viktor Traustason forsetaframbjóðandi er afar ósáttur við að honum, sem og helmingi þeirra sem í forsetaframboði eru, sé ekki boðið til þátttöku í kappræðum Stöðvar 2 og hvetur til sniðgöngu. Innlent 16. maí 2024 16:32