Erlent

Sagðist opinn fyrir tak­mörkunum á getnaðar­varnir

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, var staddur í New York í dag.
Donald Trump, var staddur í New York í dag. AP/Michael M. Santiago

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag vera opinn fyrir því að takmarka aðgengi Bandaríkjamanna að getnaðarvörnum og að framboð hans myndi brátt birta stefnuskjal um málefnið. Þetta sagði hann í sjónvarpsviðtali, skömmu áður en hann dróg í land og sagði að ummæli sín hefðu verið rangtúlkuð.

Þetta var í fyrsta sinn sem Trump leggur til að hann sé að móta einhverskonar stefnu varðandi getnaðarvarnir frá því Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi stjórnarskrárvarinn rétt kvenna til þungunarrofs úr gildi. Síðan þá hefur mikil umræða um þungunarrof, getnaðarvarnir og tæknifrjóvganir átt sér stað í Bandaríkjunum.

Þegar Hæstiréttur felldi rétt kvenna til þungunarrofs úr gildi skrifaði Clarence Thomas, einn sex dómara af níu sem skipaður var af forseta úr Repúblikanaflokknum, að dómstóllinn ætti að taka til endurskoðunar dómafordæmi sem tryggði rétt gifts fólks að getnaðarvörnum.

Umræðan um getnaðarvarnir snýr að miklu leyti að svokallaðri „neyðarpillu“. Pillu sem konur geta tekið eftir kynmök til að koma í veg fyrir óléttu. Íhaldsmenn í Bandaríkjunum hafa víða reynt að koma í veg fyrir að konur geti pantað sér slíkar pillur í pósti.

Eins og fram kemur í frétt New York Times óttast leiðtogar Repúblikanaflokksins að andstaða við getnaðarvarnir gæti komið niður á flokknum í kosningunum í nóvember.

Framboð Joes Biden, forseta og mótframbjóðanda Trumps, stökk á ummælin og dreifði þeim á samfélagsmiðlum. Sarafina Chitika, talskona framboðsins, sagði einnig að konur víðsvegar um Bandaríkin hefðu þjáðst vegna þeirrar martraðar sem Trump hefði valdið, og var hún þar að vísa til áðurnefndrar ákvörðunar íhaldssamra dómara Hæstaréttar Bandaríkjanna.

Hún sagði að ef Trump yrði aftur forseti væri ljóst að hann vildi ganga enn lengra og draga úr aðgengi fólks að getnaðarvörnum og þar á meðal neyðarpillunni.

Seinna í dag birti Trump færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, þar sem hann sagði aldrei hafa komið til greina að takmarka aðgengi að getnaðarvörnum. Þetta væru einfaldlega „lygar Demókrata“ og falsfréttir.

Þegar Trump var spurður út í afstöðu sína í garð takmarkana á því að senda neyðarpillur í pósti í viðtali þann 12. apríl, sagði Trump að hann hefði sterkar skoðanir á því máli og að framboð hans myndi gefa út yfirlýsingu á næstu tveimur vikum.

Þann 27. apríl var hann spurður aftur og hét hann þá yfirlýsingu á næstu tveimur vikum en síðan eru liðnar þrjár vikur.

Í svari við fyrirspurn frá blaðamönnum AP sögðu talsmenn framboðs Trumps að hann hefði ávallt verið hlynntur því að ákvarðanir um málefni sem þessi ættu að vera á höndum ráðamanna hvers ríkis Bandaríkjanna fyrir sig.


Tengdar fréttir

Vitna­leiðslum lokið án fram­burðar Trump

Verjendur Donalds Trump luku við að kalla til vitni í þagnargreiðslumálinu í New York í dag. Trump bar ekki vitni í málinu þrátt fyrir að hann hefði fullyrt að hann ætlaði sér „algerlega“ að gera það áður en réttarhöldin hófust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×