Innlent Farin af landi eftir að hafa verið hótað endurkomubanni Albanskur karlmaður á þrítugsaldri, Elio Hasani, sem meinuð var landganga í vikunni og haldið í flugstöðinni, ásamt fimmtán ára frænku sinni, í um þrjátíu klukkutíma hefur nú yfirgefið landið sjálfur. Innlent 8.6.2023 12:42 Ragnar telur seðlabankastjóra í ójafnvægi Fyrrverandi ríkissáttasemjari minnir seðlabankastjóra á að tala af virðingu um aðila vinnumarkaðarins og hafnar því að hafa reynt að hafa áhrif á ákvarðanir bankans. Formaður VR segir seðlabankastjóra í ójafnvægi og vísar orðum um meintan óstöðugleika sinn á samningafundum til föðurhúsanna Innlent 8.6.2023 12:30 Utanríkisráðherra segir lítinn sóma af niðurstöðu Alþingis Utanríkisráðherra segir ekki mikinn sóma af því að Alþingi hafi ekki framlengt niðurfellingu tolla á innflutningi landbúnaðarvöru frá Úkraínu. Þetta hafi verið mikilvægur stuðningur við Úkraínu sem reki efnahagskerfi sitt núna á þrjátíu prósenta afköstum. Innlent 8.6.2023 12:18 Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á Alþingi en þar keppast menn nú við að klára þingstörfin en þeim á að ljúka á morgun. Innlent 8.6.2023 11:39 Boðar áfrýjun í makrílmálinu og segir ríkið ekki hafa hafnað sátt Íslenska ríkið hefur boðað áfrýjun í makrílmálinu, máli Vinnslustöðvarinnar og Hugins gegn íslenska ríkinu, en dómur féll í héraðsdómi í fyrradag. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkið ekki hafa hafnað sátt í málinu. Innlent 8.6.2023 11:24 Segir ríkissáttasemjara hafa freistað þess að hafa áhrif á Seðlabankann Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri greinir frá því í viðtali við Morgunblaðið í morgun að ríkissáttasemjari, sem þá var Aðalsteinn Leifsson, hafi hringt í Seðlabankann til að hafa áhrif á aðgerðir hans þegar kjaraviðræður stóðu sem hæst. Innlent 8.6.2023 09:58 Segir að sveitarfélögin ættu að sjá að sér líkt og forsætisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóri, segir tímabært að sveitarfélögin skipti um kúrs, hætti að hengja sig í formrök og tryggi að allir fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Innlent 8.6.2023 08:58 Hald lagt á stóran hátalara eftir ítrekað ónæði síðustu nætur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af einstaklingi í nótt sem ku hafa farið um miðborgina síðustu nætur með stóran hátalara, spilað háværa tónlist og truflað nætursvefn íbúa. Innlent 8.6.2023 06:59 Stjórnlaus ríkisfjármál og ríkisstjórn í sýndarmennsku Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kom víða við í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. Sagði hann ríkisfjármálin algjörlega stjórnlaus og störf ríkisstjórnar einkennast af sýndarmennsku. Innlent 8.6.2023 00:11 „Þurfum að ákveða hvers konar þjóð við viljum vera“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, segir ákall eftir aðgerðum standa upp úr að liðnum þingvetri. Flokkur hennar hafi reynt að stappa stálinu í ríkisstjórnina sem beri sig illa og tali eins og hún stýri engu. Innlent 7.6.2023 23:08 Samgönguáætlun frestast og jarðgöng bíða nýs gjaldakerfis Innviðaráðherra hefur hætt við að leggja nýja samgönguáætlun fyrir Alþingi þetta vorið. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar sér ekki að næstu jarðgöng verði boðin út fyrr en búið verður að innleiða nýtt gjaldakerfi af umferð. Innlent 7.6.2023 21:33 Missa aðstöðuna rétt fyrir heimsmeistaramót eftir gjaldþrot skólans Tvær stelpur sem eru á leið á heimsmeistaramótið í dansi segja það ömurlegt að missa æfingahúsnæðið örfáum vikum fyrir mótið. Í kjölfar gjaldþrots dansskóla þeirra vita þær aldrei hvar þær æfa næst. Innlent 7.6.2023 21:00 Rostungurinn er farinn Rostungurinn sem legið hefur í fjörunni í Álftanesi í dag hefur synt aftur út á haf út samkvæmt sjónarvottum. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Innlent 7.6.2023 20:14 Manni og barni haldið í Leifsstöð í þrjátíu tíma Albanskur maður og ólögráða frænka hans hafa þurft að hírast í Leifsstöð í meira en þrjátíu klukkutíma. Lögreglan hótar að vísa honum úr landi en lögmaður mannsins segir hana ekki hafa heimild til þess. Dvalarleyfisumsókn sé enn þá í vinnslu. Innlent 7.6.2023 19:58 „Þetta er þvílík vanvirðing fyrir þessa stétt“ Fjölmenn mótmæli fóru fram við húsnæði Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun. Mótmælin voru skipulögð af foreldrum sem voru orðnir langþreyttir á deilu sambandsins við BSRB. Framkvæmdastjóri sambandsins mætti á mótmælin en orð hans til mótmælenda féllu í grýttan jarðveg. Innlent 7.6.2023 19:31 Myndaveisla: Rostungur í mestu makindum á Álftanesi Rostungur sem sást í Hafnarfjarðarhöfn liggur nú í fjörunni á Álftanesi. Þar hefur hann verið í nokkrar klukkustundir og vakið mikla athygli. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, mætti á vettvang og tók myndir af þessari mögnuðu skepnu. Innlent 7.6.2023 19:21 Seðlabankastjóri væntir frekari aðgerða gegn verðbólgu í fjárlögum Seðlabankastjóri segir aðgerðir stjórnvalda til að vinna gegn verðbólgu jákvæðar. Þær væru eitt skref af mörgum sem taka verði og væntir frekari aðgerða í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þá hvetur Seðlabankinn lánastofnanir til að nýta aukinn veðrétt heimila eftir mikla hækkun húsnæðisverðs til að breyta skilmálum lána. Innlent 7.6.2023 19:21 Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður, svokallaðar eldhúsdagsumræður, fara fram á Alþingi í kvöld og hefjast klukkan 19:40. Innlent 7.6.2023 19:00 Tilkynntur til lögreglu fyrir að spila Bubba Maður var tilkynntur til lögreglu í dag vegna hávaða og láta í heimahúsi í Árbæ. Við nánari skoðun lögreglu kom í ljós að maðurinn var að spila lög með Bubba Morthens. Innlent 7.6.2023 18:40 Mátti ekki þyngja dóm föður sem káfaði á dóttur sinni Hæstiréttur hefur mildað dóm Landsréttar yfir manni sem sakfelldur var fyrir að káfa á dóttur sinni í tvö skipti. Málið er eitt þeirra sem fór fyrir Endurupptökudóm í kjölfar Landsréttarmálsins svokallaða. Innlent 7.6.2023 17:14 „Það vill enginn unglingur vera bara með foreldrum sínum alla daga“ Móðir fatlaðs drengs segir óþolandi að vita ekki hvort og þá hvar sonur hennar fær inni í framhaldsskóla í haust. Slík mál komi upp á hverju einasta ári. Innlent 7.6.2023 17:01 Óvenjulegt háttalag lirfa í Hafnarfirði Erling Ólafsson, skordýrafræðingur, vekur athygli á óvenjulegri hátterni sem lirfur fiðrildategundarinnar haustfeta hafa sýnt í Hafnarfirði undanfarið. Lirfurnar hafa í þúsundatali pakkað inn stóru runnabeði í þéttan límkenndan spunavef og lokast inni í honum. Innlent 7.6.2023 17:00 Harmar óþarfa fugladráp og biðlar til kattaeigenda að vera á varðbergi María Huld Markan Sigfúsdóttir, íbúi í Vesturbæ Reykjavíkur, segir sárt að verða vitni að því blóðbaði sem á sér stað ár hvert þegar heimiliskettir veitast að fuglum með nýfædda unga í hverfinu. Hún biðlar til kattaeigenda að gera það sem þau geta til þess að koma í veg fyrir óþarfa morð á fuglum. Innlent 7.6.2023 16:23 Bein útsending: Rostungur í fjörunni á Álftanesi Rostungur sem sást í Hafnarfjarðarhöfn liggur nú í fjörunni á Álftanesi. Þar hefur hann verið í nokkrar klukkustundir. Fólk er varað við því að koma ekki nær en hundrað metra frá rostungnum Innlent 7.6.2023 15:49 Hægt að gifta sig í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir þrjátíu þúsund krónur Elskendur geta leigt sal í Ráðhúsi Reykjavíkur og látið pússa sig saman alla virka daga og laugardaga á milli klukkan 10 og 15. Aðstoð við uppsetningu, dúkar og kertastjakar eru innifalin í verðinu sem er þrjátíu þúsund krónur á virkum dögum en fjörutíu þúsund krónur á laugardögum. Innlent 7.6.2023 14:52 Regnboginn fer hvergi og verður lagður með slitsterku efni Regnbogi verður áfram á Skólavörðustíg í Reykjavík og stendur til leggja hann með slitsterku efni í sumar. Innlent 7.6.2023 14:33 Tóku fagnandi á móti Sæfara eftir tólf vikur í slipp Grímeyjarferjan Sæfari kom siglandi frá Dalvík og lagðist við bryggju í Grímsey um hádegisbil í dag. Ferjan sigldi loks aftur í morgun, en hún hafði verið tólf vikur í slipp á Akureyri. Upphaflega stóð til að hún yrði sex til átta vikur í slipp. Innlent 7.6.2023 14:10 „Ég neita að trúa að Alþingi Íslendinga ætli að vera svona smátt“ Harðar umræður urðu á Alþingi í dag vegna erindis er varðar undanþágu vegna tollfrjáls innflutnings frá Úkraínu. Þingmenn Viðreisnar flykktust í pontu til að gagnrýna máttleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart hagsmunaöflum íslensks landbúnaðar. Innlent 7.6.2023 14:03 Annasamur sólarhringur hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þrisvar sinnum kölluð út síðastliðinn sólarhring. Tvö útkallanna voru utan af sjó. Innlent 7.6.2023 12:15 „Þeir þurfa bara að bakka og segja já“ Kröftug mótmæli voru haldin fyrir framan húsnæði Samtaka íslenskra sveitarfélaga í morgun. Lúðrar voru þeyttir og „Sömu laun fyrir sömu störf“ var hrópað síendurtekið. Skipuleggjendur mótmælanna segja að Sambandið þurfi einfaldlega að mæta kröfum BSRB, sem muni ekki slá af kröfum sínum. Innlent 7.6.2023 12:06 « ‹ 331 332 333 334 ›
Farin af landi eftir að hafa verið hótað endurkomubanni Albanskur karlmaður á þrítugsaldri, Elio Hasani, sem meinuð var landganga í vikunni og haldið í flugstöðinni, ásamt fimmtán ára frænku sinni, í um þrjátíu klukkutíma hefur nú yfirgefið landið sjálfur. Innlent 8.6.2023 12:42
Ragnar telur seðlabankastjóra í ójafnvægi Fyrrverandi ríkissáttasemjari minnir seðlabankastjóra á að tala af virðingu um aðila vinnumarkaðarins og hafnar því að hafa reynt að hafa áhrif á ákvarðanir bankans. Formaður VR segir seðlabankastjóra í ójafnvægi og vísar orðum um meintan óstöðugleika sinn á samningafundum til föðurhúsanna Innlent 8.6.2023 12:30
Utanríkisráðherra segir lítinn sóma af niðurstöðu Alþingis Utanríkisráðherra segir ekki mikinn sóma af því að Alþingi hafi ekki framlengt niðurfellingu tolla á innflutningi landbúnaðarvöru frá Úkraínu. Þetta hafi verið mikilvægur stuðningur við Úkraínu sem reki efnahagskerfi sitt núna á þrjátíu prósenta afköstum. Innlent 8.6.2023 12:18
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á Alþingi en þar keppast menn nú við að klára þingstörfin en þeim á að ljúka á morgun. Innlent 8.6.2023 11:39
Boðar áfrýjun í makrílmálinu og segir ríkið ekki hafa hafnað sátt Íslenska ríkið hefur boðað áfrýjun í makrílmálinu, máli Vinnslustöðvarinnar og Hugins gegn íslenska ríkinu, en dómur féll í héraðsdómi í fyrradag. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkið ekki hafa hafnað sátt í málinu. Innlent 8.6.2023 11:24
Segir ríkissáttasemjara hafa freistað þess að hafa áhrif á Seðlabankann Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri greinir frá því í viðtali við Morgunblaðið í morgun að ríkissáttasemjari, sem þá var Aðalsteinn Leifsson, hafi hringt í Seðlabankann til að hafa áhrif á aðgerðir hans þegar kjaraviðræður stóðu sem hæst. Innlent 8.6.2023 09:58
Segir að sveitarfélögin ættu að sjá að sér líkt og forsætisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóri, segir tímabært að sveitarfélögin skipti um kúrs, hætti að hengja sig í formrök og tryggi að allir fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Innlent 8.6.2023 08:58
Hald lagt á stóran hátalara eftir ítrekað ónæði síðustu nætur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af einstaklingi í nótt sem ku hafa farið um miðborgina síðustu nætur með stóran hátalara, spilað háværa tónlist og truflað nætursvefn íbúa. Innlent 8.6.2023 06:59
Stjórnlaus ríkisfjármál og ríkisstjórn í sýndarmennsku Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kom víða við í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. Sagði hann ríkisfjármálin algjörlega stjórnlaus og störf ríkisstjórnar einkennast af sýndarmennsku. Innlent 8.6.2023 00:11
„Þurfum að ákveða hvers konar þjóð við viljum vera“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, segir ákall eftir aðgerðum standa upp úr að liðnum þingvetri. Flokkur hennar hafi reynt að stappa stálinu í ríkisstjórnina sem beri sig illa og tali eins og hún stýri engu. Innlent 7.6.2023 23:08
Samgönguáætlun frestast og jarðgöng bíða nýs gjaldakerfis Innviðaráðherra hefur hætt við að leggja nýja samgönguáætlun fyrir Alþingi þetta vorið. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar sér ekki að næstu jarðgöng verði boðin út fyrr en búið verður að innleiða nýtt gjaldakerfi af umferð. Innlent 7.6.2023 21:33
Missa aðstöðuna rétt fyrir heimsmeistaramót eftir gjaldþrot skólans Tvær stelpur sem eru á leið á heimsmeistaramótið í dansi segja það ömurlegt að missa æfingahúsnæðið örfáum vikum fyrir mótið. Í kjölfar gjaldþrots dansskóla þeirra vita þær aldrei hvar þær æfa næst. Innlent 7.6.2023 21:00
Rostungurinn er farinn Rostungurinn sem legið hefur í fjörunni í Álftanesi í dag hefur synt aftur út á haf út samkvæmt sjónarvottum. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Innlent 7.6.2023 20:14
Manni og barni haldið í Leifsstöð í þrjátíu tíma Albanskur maður og ólögráða frænka hans hafa þurft að hírast í Leifsstöð í meira en þrjátíu klukkutíma. Lögreglan hótar að vísa honum úr landi en lögmaður mannsins segir hana ekki hafa heimild til þess. Dvalarleyfisumsókn sé enn þá í vinnslu. Innlent 7.6.2023 19:58
„Þetta er þvílík vanvirðing fyrir þessa stétt“ Fjölmenn mótmæli fóru fram við húsnæði Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun. Mótmælin voru skipulögð af foreldrum sem voru orðnir langþreyttir á deilu sambandsins við BSRB. Framkvæmdastjóri sambandsins mætti á mótmælin en orð hans til mótmælenda féllu í grýttan jarðveg. Innlent 7.6.2023 19:31
Myndaveisla: Rostungur í mestu makindum á Álftanesi Rostungur sem sást í Hafnarfjarðarhöfn liggur nú í fjörunni á Álftanesi. Þar hefur hann verið í nokkrar klukkustundir og vakið mikla athygli. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, mætti á vettvang og tók myndir af þessari mögnuðu skepnu. Innlent 7.6.2023 19:21
Seðlabankastjóri væntir frekari aðgerða gegn verðbólgu í fjárlögum Seðlabankastjóri segir aðgerðir stjórnvalda til að vinna gegn verðbólgu jákvæðar. Þær væru eitt skref af mörgum sem taka verði og væntir frekari aðgerða í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þá hvetur Seðlabankinn lánastofnanir til að nýta aukinn veðrétt heimila eftir mikla hækkun húsnæðisverðs til að breyta skilmálum lána. Innlent 7.6.2023 19:21
Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður, svokallaðar eldhúsdagsumræður, fara fram á Alþingi í kvöld og hefjast klukkan 19:40. Innlent 7.6.2023 19:00
Tilkynntur til lögreglu fyrir að spila Bubba Maður var tilkynntur til lögreglu í dag vegna hávaða og láta í heimahúsi í Árbæ. Við nánari skoðun lögreglu kom í ljós að maðurinn var að spila lög með Bubba Morthens. Innlent 7.6.2023 18:40
Mátti ekki þyngja dóm föður sem káfaði á dóttur sinni Hæstiréttur hefur mildað dóm Landsréttar yfir manni sem sakfelldur var fyrir að káfa á dóttur sinni í tvö skipti. Málið er eitt þeirra sem fór fyrir Endurupptökudóm í kjölfar Landsréttarmálsins svokallaða. Innlent 7.6.2023 17:14
„Það vill enginn unglingur vera bara með foreldrum sínum alla daga“ Móðir fatlaðs drengs segir óþolandi að vita ekki hvort og þá hvar sonur hennar fær inni í framhaldsskóla í haust. Slík mál komi upp á hverju einasta ári. Innlent 7.6.2023 17:01
Óvenjulegt háttalag lirfa í Hafnarfirði Erling Ólafsson, skordýrafræðingur, vekur athygli á óvenjulegri hátterni sem lirfur fiðrildategundarinnar haustfeta hafa sýnt í Hafnarfirði undanfarið. Lirfurnar hafa í þúsundatali pakkað inn stóru runnabeði í þéttan límkenndan spunavef og lokast inni í honum. Innlent 7.6.2023 17:00
Harmar óþarfa fugladráp og biðlar til kattaeigenda að vera á varðbergi María Huld Markan Sigfúsdóttir, íbúi í Vesturbæ Reykjavíkur, segir sárt að verða vitni að því blóðbaði sem á sér stað ár hvert þegar heimiliskettir veitast að fuglum með nýfædda unga í hverfinu. Hún biðlar til kattaeigenda að gera það sem þau geta til þess að koma í veg fyrir óþarfa morð á fuglum. Innlent 7.6.2023 16:23
Bein útsending: Rostungur í fjörunni á Álftanesi Rostungur sem sást í Hafnarfjarðarhöfn liggur nú í fjörunni á Álftanesi. Þar hefur hann verið í nokkrar klukkustundir. Fólk er varað við því að koma ekki nær en hundrað metra frá rostungnum Innlent 7.6.2023 15:49
Hægt að gifta sig í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir þrjátíu þúsund krónur Elskendur geta leigt sal í Ráðhúsi Reykjavíkur og látið pússa sig saman alla virka daga og laugardaga á milli klukkan 10 og 15. Aðstoð við uppsetningu, dúkar og kertastjakar eru innifalin í verðinu sem er þrjátíu þúsund krónur á virkum dögum en fjörutíu þúsund krónur á laugardögum. Innlent 7.6.2023 14:52
Regnboginn fer hvergi og verður lagður með slitsterku efni Regnbogi verður áfram á Skólavörðustíg í Reykjavík og stendur til leggja hann með slitsterku efni í sumar. Innlent 7.6.2023 14:33
Tóku fagnandi á móti Sæfara eftir tólf vikur í slipp Grímeyjarferjan Sæfari kom siglandi frá Dalvík og lagðist við bryggju í Grímsey um hádegisbil í dag. Ferjan sigldi loks aftur í morgun, en hún hafði verið tólf vikur í slipp á Akureyri. Upphaflega stóð til að hún yrði sex til átta vikur í slipp. Innlent 7.6.2023 14:10
„Ég neita að trúa að Alþingi Íslendinga ætli að vera svona smátt“ Harðar umræður urðu á Alþingi í dag vegna erindis er varðar undanþágu vegna tollfrjáls innflutnings frá Úkraínu. Þingmenn Viðreisnar flykktust í pontu til að gagnrýna máttleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart hagsmunaöflum íslensks landbúnaðar. Innlent 7.6.2023 14:03
Annasamur sólarhringur hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þrisvar sinnum kölluð út síðastliðinn sólarhring. Tvö útkallanna voru utan af sjó. Innlent 7.6.2023 12:15
„Þeir þurfa bara að bakka og segja já“ Kröftug mótmæli voru haldin fyrir framan húsnæði Samtaka íslenskra sveitarfélaga í morgun. Lúðrar voru þeyttir og „Sömu laun fyrir sömu störf“ var hrópað síendurtekið. Skipuleggjendur mótmælanna segja að Sambandið þurfi einfaldlega að mæta kröfum BSRB, sem muni ekki slá af kröfum sínum. Innlent 7.6.2023 12:06