Innlent

Börn lögð inn með kíg­hósta

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Valtýr Thors, barnalæknir.
Valtýr Thors, barnalæknir. Vísir/Arnar

Börn greind með kíghósta hafa verið lögð inn á spítala hér á landi síðustu vikur. Alls hafa sautján greinst með sýkinguna undanfarið, sem barnalæknir segir áhyggjuefni. Hann hvetur fólk til að huga vel að bólusetningum, einkum barnshafandi konur.

Í yfirliti landlæknisembættisins yfir öndunarfærasýkingar síðustu tvær vikurnar í apríl kemur fram Að minnsta kosti sautján einstaklingar á aldrinum 2 til 39 ára hafa greinst með kíghósta, í fyrsta sinn síðan 2019. Kíghósti getur einkum valdið mjög alvarlegum veikindum í yngstu börnunum en eldri börn geta einnig orðið talsvert veik.

„Það hafa verið tilfelli hjá börnum, reyndar ekki minnstu börnin, en það hafa verið börn sem hafa lagst inn og greinst með kíghósta,“ segir Valtýr Thors barnalæknir, inntur eftir því hvort eitthvað hafi verið um innlagnir barna með kíghósta síðustu vikur.

Hafa þau verið alvarlega veik? 

„Nei, það er nú ekki hægt að segja það. Alvarlegustu veikindin hjá yngstu börnunum eru veikindi sem lýsa sér þannig að yngstu börnin þurfa verulegan öndunarstuðning og geta farið í öndunarstopp og þurfa þá oft að liggja inni á spítalanum í marga daga eða jafnvel vikur. Slíkt hefur ekki komið upp hjá okkur enn þá en við erum við öllu búinn og það kæmi ekki á óvart ef slíkt myndi gerast.“

Valtýr segir það alltaf áhyggjuefni þegar sýkingar sem þessar koma upp; kíghósti breiðist gjarnan út í bylgjum, á þriggja til fimm ára fresti. Ein ástæðan að baki því geti verið óbólusettir hópar, eða hópar sem ekki hafi nægilega vernd, úti í samfélaginu. Mikilvægt sé að fólk hugi að bólusetningum; einkum yngsu barnanna, svo og barnshafandi konur.

„Það er gríðarlega mikilvægt. Við höfum verið með þær ráðleggingar í nokkur ár að allar konur sem verða barnshafandi fái viðbótarbólusetningu gegn kíghósta því þá er annars vegar móðirin vel varin, bæði á meðgöngunni og eftir meðgönguna, og veitir síðan barninu vernd gegnum sín eigin mótefni fyrstu þrjá mánuðina og jafnvel sex mánuðina,“ segir Valtýr.


Tengdar fréttir

Barn á Akureyri greindist með kíghósta

Kíghósti hefur greinst í barni í Brekkuskóla á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu Landlæknis. Minnt er á mikilvægi bólusetninga gegn sjúkdómum sem kíghósta, en þátttaka barna í bólusetningum hefur dregist saman síðustu ár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×