Innlent

Sól­ríkasta byrjun árs í Reykja­vík í 77 ár

Kjartan Kjartansson skrifar
Bjartur dagur í Reykjavík í mars. Aðeins einu sinni hafa sólskinsstundir mælst fleiri fyrstu fjóra mánuði ársins en í ár.
Bjartur dagur í Reykjavík í mars. Aðeins einu sinni hafa sólskinsstundir mælst fleiri fyrstu fjóra mánuði ársins en í ár. Vísir/Arnar

Leita þarf aftur til fimmta áratugs síðustu aldar til þess að finna sólríkari byrjun árs í Reykjavík en í ár. Apríl var kaldur og óvenjuþurr víða um land.

Alls mældist 512,1 sólskinsstund í Reykjavík fyrstu fjóra mánuði ársins samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar um tíðarfar í apríl og upphafi árs. Aðeins einu sinni í sögu mælingar hafa þær mælst fleiri, árið 1947. Apríl var fjórði sólríkasti aprílmánuður í borginni frá upphafi mælinga árið 1911.

Ekki var þó hlýtt í Reykjavík í apríl. Meðalhitinn var 3,1 gráður sem er hálfri gráðu undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 1,3 gráðum undir meðallagi síðustu tíu ára. 

Mánuðurinn var hlutfallslega þurr í borginni en úrkoman var rúmur þriðungur af meðalúrkomunni 1991 til 2020. Aðeins sjö sinnum hefur mælst minni úrkoma í apríl í Reykjavík í apríl frá upphafi samfelldra úrkomumælinga þar. Jörð var aðeins flekkótt af snjó einn dag í apríl.

Fyrstu fjórir mánuðir ársins voru einnig óvenjuþurrir í Reykjavík. Úrkoman var um sjötíu prósent af meðalheildarúrkomu janúar til apríl 1991 til 2020.

Snjóþungt og kalt fyrir norðan og austan

Meðalhiti á landinu öllu í apríl var undir meðallagi aprílmánaða síðustu tíu ára. Sérstaklega var kalt inn til landsins á Norðaustur- og Austurlandi. Víða á Austurlandi var apríl svalari en mars. Lágmarkshitamet féllu á ýmsum sjálfvirkum veðurstöðvum á norður- og austurhluta landsins í fyrri hluta apríl en hlýrra var í veðri seinni hluta mánaðarins. Lægsti hitinn mældist -22,3 stig í Svartárkoti.

Apríl var þurrt víðast á landinu fyrir utan norðausturfjórðunginn. Á Akureyri var mánaðarúrkoman þannig áttatíu prósent umfram meðalúrkomu aprílmánaða frá 1991 til 2020.

Snjóþungt var á norðan- og austanverðu landinu fram eftir apríl og töluvert um samgöngutruflanir vegna hríðarveðurs og fannfergis. Á Akureyri voru sautján alhvítir dagar, rúmlega þrefalt fleiri en vanalega, og jörð var ekki alauð neinn morgun í apríl.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×