Lífið

Segir sjálfsvígin sárust

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Baldur Þórhallsson er gestur Gunnars Inga í hlaðvarpsþættinum Lífið á biðlista.
Baldur Þórhallsson er gestur Gunnars Inga í hlaðvarpsþættinum Lífið á biðlista. Vísir/Vilhelm

Bald­ur Þór­halls­son for­setafram­bjóðandi er fyrsti gestur þáttarins Lífið á biðlista sem ekki er alkóhólisti. Í þættinum, sem er í umsjón Gunnars Inga Valgeirssonar, segir Baldur frá þeirri vanlíðan sem því fylgir að vera aðstandandi ungmenna með vímuefnavanda, og sjá á eftir þeim í blóma lífsins.

Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.

„Sárasta reynslan er af tveimur ungmennum, annars vegar systir barnsmóður minnar, Kristín Gerður Guðmundsdóttir, sem átti við mikinn fíkniefnavanda að etja, á sínum tíma, og alla þá drauga sem því fylgdu. Hún svipti sig lífi árið 2001, ung kona,“ segir Baldur. Kristín sem var systir barnsmóður hans átti við mikinn fíkniefnavanda að etja og endaði með því að taka sitt eigið líf 31 árs gömul.

Kvikmyndin Lof mér að falla fjallar að hluta til um líf Kristínar sem byggðar er á dagbókarskrifum hennar. 

„Það tekur á að fylgjast með þeirri vanlíðan sem fylgir þessum fíkniefnavanda og líka hversu mikil áhrif það hefur á fjölskylduna, foreldra og alla aðstandendur og vini sem þykir vænt um einstaklinginn. Eins mikið gæfiblóð og góð manneskja sem Kristín var, gáfuð og öflug. Svo bara ræður fólk ekki við fíkniefnavandann, þó að það sé reynt að standa við bakið á fólki,“ segir Bald­ur.

Baldur segir frá nýlegri reynslu þegar systursonur eiginmanns hans Felixar Bergssonar, Bergur Snær Sigurþóruson, sem einnig leiddist út í kannabisneyslu sem unglingur tók sitt eigið líf eftir erfiða lífsreynslu aðeins 19 ára gamall.

Fljótlega eftir að andlát Berg Snæs stofnaði móðir hans Bergið Headspace, en það vinnur sérstaklega að því að hjálpa börnum og ungu fólki, frá 12 ára aldri og upp í 25 ára aldur, sem eru í vanda, hvort sem það er vegna fíknar eða annarra erfiðleika.

Þáttinn í heild sinni má heyra finna í spilaranum hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×