Innlent

Ein­hver í her­berginu segi ekki satt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Halla Tómasdóttir sagði að sjálfsögðu engin tröll á sínum vegum. En miðað við það sem hún hefði séð í kosningabaráttunni þá væru sannarlega tröll á ferðinni.
Halla Tómasdóttir sagði að sjálfsögðu engin tröll á sínum vegum. En miðað við það sem hún hefði séð í kosningabaráttunni þá væru sannarlega tröll á ferðinni. Vísir/vilhelm

Halla Tómasdóttir segir augljóst að einhver þeirra sex forsetaefna sem tóku þátt í kappræðum á Stöð 2 í kvöld hafi tröll á sínum snærum sem ati aðra auri. Einhver þeirra sé því ekki að segja satt.

Forsetaefnin voru öll spurð út í baráttuna um Bessastaði og hvort það væri fólk í þeirra herbúðum sem mætti líkja við tröll í þeim efnum.

Arnar Þór Jónsson sagðist hafa gert skrifleg tilmæli til sinna stuðningsmanna um að grafa ekki undan öðrum frambjóðendum. Óábyrgt sé að dreifa kjaftasögum. Halla Hrund sagðist ekki kannast við nein tröll nema þau sem búi í fjöllunum.

Jóni Gnarr fannst spurningin asnaleg. Hvernig dytti fólki þetta í hug og þess utan, ef einhver væri með tröll á sínum snærum þá myndi viðkomandi aldrei viðurkenna það.

„Það eru augljóslega einhver tröll því ég held að allir sem hér standa hafi orðið fyrir þeim,“ sagði Halla Tómasdóttir.

„Það er einhver sem segir ekki satt um það.“

Sjái hún eitthvað slíkt á sínum vegum þá láti hún heyra í sér.

Katrín Jakobsdóttir og Baldur Þórhallsson töluðu á þeim nótum að þau töluðu fyrir málefnalegri umræðu í sínum stuðningshópum. Ræða sín eigin gildi en ekki tala illa um aðra frambjóðendur.

„Einhvers staðar leynast tröllin en þau munu frjósa þegar sólin kemur upp,“ sagði Baldur.

Kappræðurnar í heild má sjá að neðan.


Tengdar fréttir

„Við erum ekki hlut­laus þjóð“

Frambjóðendur til forseta lýstu almennt andstöðu við vopnakaup fyrir Úkraínu í kappræðum á Stöð 2 í kvöld. Þeir lögðu áherslu á hlutleysis- og friðarstefnu en fyrrverandi forsætisráðherra benti á að Íslandi væri þó ekki hlutlaus þjóð.

Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn

Katrín Jakobsdóttir tekur forystuna á ný samkvæmt nýrri könnun Maskínu en þó er ekki marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur. Halla Tómasdóttir er síðan í mikilli sókn og rúmlega tvöfaldar fylgi sitt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×