Fótbolti

Infantino segir sam­tökunum að hætta „til­gangs­lausu þrasi“ um leikjaálag

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Gianni Infantino, forseti FIFA, er ekki maður sem liggur á skoðunum sínum.
Gianni Infantino, forseti FIFA, er ekki maður sem liggur á skoðunum sínum. Ulrik Pedersen/DeFodi Images via Getty Images

Forseti FIFA, Gianni Infantino, var heldur harðorður í garð samtakanna sem gagnrýnt hafa fyrirhugaðar breytingar á heimsmeistaramóti félagsliða. Hann sagði gagnrýnina tilgangslausa og benti á að þeir fáu leikir sem FIFA skipuleggur fjármagna fótboltastarfsemi um allan heim. 

Knattspyrnumenn og þjálfarar hafa í auknum mæli undanfarin ár kvartað undan leikjaálagi. Fjölgun landsleikja, endurtekning bikarleikja og breytingar á mótafyrirkomulögum hafa almennt ekki notið góðs hljómgrunns. 

FIFA ákvað svo í desemeber á síðasta ári að auka enn á álagið með því að stækka HM félagsliða og fjölga liðum í keppninni. 

Samtök atvinnumannadeilda (World Leagues Association) og samtök atvinnufótboltamanna (FifPro) sendu FIFA bréf á dögunum þar sem sambandinu var hótað lögsókn ef verður af fyrirhugaðri stækkun og fjölgun.

 

Gianni Infantino, forseti FIFA, tjáði sig málið á þingi sambandsins í Bangkok í dag. Hann sagðist vona að WLA og FifPro hætti þessu „tilgangslausa þrasi“.

„Jafnvel ef talið er með nýja HM félagsliða þar sem 32 lið leika samtals 63 leiki á fjögurra ári fresti, þá er FIFA ekki að skipuleggja nema um 1 prósent leikja á heimsvísu. Allir aðrir leikir, 98-99 prósent er skipulagt af ykkur - sem er gott.“

„Svo er það málið, að þessi 1 eða 2 prósent leikja sem FIFA skipuleggur fjármagnar fótboltann út um allan heim.“

FIFA hefur alltaf haldið því fram að sérstakt tillit sé tekið til heilsu leikmanna við skipulagningu keppninnar og að nýja keppnin passi vel inn í alþjóðlega fótboltadagatalið.

Það má því vænta aðgerða frá WLA og FifPro en í bréfi sambandsins sagði: „Ef FIFA neitar beiðni okkar um að leysa þetta mál á næsta stjórnarfundi sínum þá verðum við tilneydd til að ráðleggja okkar meðlimum að skoða mögulegar aðgerðir. Einn af þeim kostum er málshöfðun gegn FIFA.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×