Atvinnulíf

For­stjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiði­maður og fram­úr­skarandi á ryk­sugunni

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jóhann Gunnar Jóhannsson forstjóri Securitas segist einkar laginn á ryksugunni heima fyrir og nýtir þá tímann til að hlusta á góðan hlaðvarpsþátt. Jóhann viðurkennir að vera snúsari. Nema á sumrin, þegar hann drífur sig fram úr og fer á mótorhjólinu í vinnuna.
Jóhann Gunnar Jóhannsson forstjóri Securitas segist einkar laginn á ryksugunni heima fyrir og nýtir þá tímann til að hlusta á góðan hlaðvarpsþátt. Jóhann viðurkennir að vera snúsari. Nema á sumrin, þegar hann drífur sig fram úr og fer á mótorhjólinu í vinnuna. Vísir/RAX

Jóhann Gunnar Jóhannsson, forstjóri Securitas, er snúsari. Nema á sumrin, þá vaknar hann fyrr og fer á mótorhjóli í vinnuna.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Alltaf kl. 06:45 en snoosa nokkrum sinnum áður en ég kem mér í gang. Nema þá góða sumardaga sem ég fer á mótorhjólinu í vinnuna, þá er ég mjög snöggur á fætur.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Hlusta á sjöfréttir með einni brauðsneið og vatnsglasi, fer síðan að tékka á krökkunum hvenær þau eiga að mæta þann daginn í skólann.“

Hvaða almennu heimilisverki telur þú þig sinna svo vel að orðið ,,framúrskarandi" ætti best við?

Ég tel mig sinna ryksugunni á heimilinu með einstakri lagni þó ég segi sjálfur frá. 

Hef nýtt tímann sem ég ryksuga í að hlusta á eitthvað gott podcast svo verkefnið er bara alls ekki svo leiðinlegt. 

Þessa dagana er ég að hlusta á „The history of Curb your enthusiasm“ enda leiður yfir að þessi frábæra Curb sería sé komin á enda.“

Jóhann skrifar niður verkefnalista og fer yfir það í lok dags, hvað þarf að gera daginn eftir. Hann reynir líka að hafa jafnvægi á milli funda og skrifborðsvinnu, þannig að skrifborðssetan sé ekki of löng í einu. Á kvöldin á hann það til að detta í kóreska sjónvarpsþætti með eiginkonunni.Vísir/RAX

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Stór og spennandi verkefni framundan þessa dagana sem fylgir nýju starfi. Ég er nýtekinn við sem forstjóri Securitas en þar starfar stór hópur af frábæru fólki sem gerir starfið og verkefnin framundan ennþá skemmtilegri. 

Við leggjum mestu áherslu á öryggi og þjónustu við okkar viðskiptavini og ég hlakka mikið til að demba mér að fullu í þau verkefni með þennan góða hóp sem ég hef mér við hlið.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég reyni að hafa flest verkefnin skrifuð niður og fara yfir í lok dags það sem þarf að gera daginn eftir. 

Annars er mjög mikilvægt að hafa jafnvægi milli funda og skrifborðsvinnu og setja vinnudaginn þannig upp að skrifborðssetan sé ekki of löng í einu. Ekki meiri speki en það, en hefur virkað ágætlega fyrir mig.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Langar að segja að ég fari alltaf snemma að sofa en það á það til að dragast þegar maður festist yfir einhverjum góðum kóreskum þáttum með konunni, en oftast um ellefu á kvöldin.“


Tengdar fréttir

Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu

Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, segist þora að fullyrða að partígestir að austan kunni upp til hópa allir að dansa við ákveðinn indverskan popp slagara. 

„Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“

Brynhildur Lilja Björnsdóttir forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar, segist svo vel gift A manneskju að hún fær rjúkandi heitt rjómakaffi í rúmið frá eiginmanninum á hverjum morgni. Og D-vítamín.

Vandræðalega kvöldsvæfur framkvæmdastjóri

Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar stofnandi indó sparisjóðs segir morgnana besta tíma dagsins en þá situr hann með fjögurra ára syni sínum og deilir með honum ristabrauðsneið áður en aðrir á heimilinu vakna.

Gæðasamtöl við dótturina, mömmu eða vinkonu á leið í vinnu

Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Verði Tryggingum, nýtir tímann vel á leiðinni til vinnu á morgnana. Því þá á hún góða gæðastund með dótturinni í bílnum og eftir að hafa skutlað henni í skólann, hringir hún oft í vinkonu eða mömmu sína og tekur stutt spjall.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×