Handbolti

Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, smelli kossi á son sinn, Gísla Þorgeir Kristjánsson, eftir leikinn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, smelli kossi á son sinn, Gísla Þorgeir Kristjánsson, eftir leikinn. vísir/hulda margrét

Íslenska karlalandsliðið í handbolta er svo gott sem komið á HM 2025 eftir 25 marka sigur á Eistlandi, 50-25, í fyrri leik liðanna í umspili í gær.

Eins og tölurnar gefa til kynna voru Íslendingar miklu sterkari aðilinn í leiknum. Þeir voru fjórtán mörkum yfir í fyrri hálfleik, 26-12, þar sem þeir klikkuðu aðeins á einu skoti. Enn dró í sundur með liðunum í seinni hálfleikur og þegar uppi var staðið vann íslenska liðið með helmings mun, 50-25.

Hulda Margrét Óladóttir, ljósmyndari Vísis, var á leiknum í Laugardalshöllinni og náði skemmtilegum myndum af strákunum okkar og áhorfendum. Brot af þeim má sjá hér fyrir neðan.

Börnin og fullorðnir voru máluð í framan.vísir/hulda margrét
Boðið var upp á leiki í anddyri Laugardalshallarins.vísir/hulda margrét
Aron Pálmarsson, fyrirliði landsliðsins, fylgdist með leiknum úr stúkunni í góðum FH-félagsskap.vísir/hulda margrét
Ómar Ingi Magnússon skoraði ellefu mörk og var markahæstur í vellinum.vísir/hulda margrét
Elliði Snær Viðarsson láréttur.vísir/hulda margrét
Mikil og góð stemmning var í Höllinni.vísir/hulda margrét
Björgvin Páll Gústavsson grípur skot með annarri hendi.vísir/hulda margrét
Orri Freyr Þorkelsson fagnar einu sjö marka sinna.vísir/hulda margrét
Einar Bragi Aðalsteinsson lék sinn fyrsta landsleik í gær.vísir/hulda margrét
Óðinn Þór Ríkharðsson að springa úr gleði.vísir/hulda margrét
Fjölskylda Gísla Þorgeirs eftir leikinn.vísir/hulda margrét

Tengdar fréttir

„Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“

„Þetta er eitthvað sem þú reiknar ekki með sem þjálfari,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, eftir sannkallaðan stórsigur gegn Eistum í kvöld, 50-25.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×