Íslenski boltinn

Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fann­eyju og Blikar sjóð­heitir

Sindri Sverrisson skrifar
Breiðablik hefur farið á kostum í upphafi tímabils í Bestu deildinni.
Breiðablik hefur farið á kostum í upphafi tímabils í Bestu deildinni. vísir/Anton

Það var nóg um að vera í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær þegar þrír leikir fóru fram. Rauða spjaldið fór tvisvar á loft í Kaplakrika, hjá FH og Þrótti, en Breiðablik og Valur héldu áfram á sigurbraut.

FH-ingar unnu dísætan sigur gegn Þrótti, 1-0, þar sem Breukelen Woodard skoraði sigurmarkið á sjöttu mínútu uppbótartíma.

Skömmu áður hafði liðsfélagi hennar, Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, fengið sitt annað gula spjald og þar með rautt. Það virtist vera fyrir afar litlar sakir en hún sparkaði boltanum frá sér rétt eftir að flautuð hafði verið rangstaða.

Þróttur hafði áður mist Leu Björt Kristjánsdóttur af velli með beint rautt spjald á 66. mínútu, þegar hún braut af sér sem aftasti varnarmaður.

Klippa: Mörkin og rauðu spjöldin hjá FH og Þrótti

Í Kópavogi voru Blikar í miklu stuði og skoruðu fimm mörk gegn Stjörnunni í fyrri hálfleik, í 5-1 sigri. Agla María Albertsdóttir skoraði tvö þeirra og var það seinna afar glæsilegt, en Andrea Rut Bjarnadóttir, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Birta Georgsdóttir voru einnig á skotskónum.

Gyða Kristín Gunnarsdóttir minnkaði muninn í 2-1 fyrir Stjörnuna, þegar aðeins fimm mínútur voru búnar af leiknum.

Klippa: Mörk Breiðabliks og Stjörnunnar

Blikar eru með fullt hús stiga eins og Valur sem slapp með skrekkinn í Keflavík og vann 2-1 sigur. Keflvíkingar komust yfir þegar landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir gerði sjaldséð mistök og missti fyrirgjöf Elvu Karenar Magnúsdóttur í markið.

Það kom þó ekki að sök því Fanndís Friðriksdóttir jafnaði metin á 55. mínútu, með föstu skoti sem fór af varnarmanni, og Nadía Atladóttir skoraði svo sigurmarkið eftir góðan samleik við Katie Cousins.

Klippa: Mörk Keflavíkur og Vals

Fjórðu umferð deildarinnar lýkur í dag þegar Víkingur tekur á móti Þór/KA og Tindastóll mætir Fylki á Akureyri. Leikirnir hefjast klukkan 16, í beinni útsendingu, og verða svo gerðir upp í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport 5 klukkan 18.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×