Lífið

Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Albini tók meðal annars upp plötur fyrir Nirvana og Pixies.
Albini tók meðal annars upp plötur fyrir Nirvana og Pixies. Getty/Paul Natkin

Tónlistarmaðurinn og -framleiðandinn Steve Albini er látinn. Albini lést á þriðjudag, 7. maí, 61 árs gamall af völdum hjartaáfalls. Albini er þekktur fyrir að hafa leitt rokkhljómsveitirnar Shellac og Big Black en auk þess framleiddi hann margar klassískar rokkplötur. 

Má þar nefna plötuna In Utero eftir Nirvana, Surfer Rosa með hljómsveitinni Pixies og Rid of Me með PJ Harvey. Þá var Albini óhræddur við að tjá sig um myrkari hliðar tónlistarbransans og var mikill gagnrýnandi stórra framleiðenda. 

Fram kemur í umfjöllun Pitchfork að til hafi staðið hjá hljómsveit Albinis, Shellac, að fara í tónleikaferðalag á næstunni í tilefni af útgáfu plötunnar To All Trains, sem er sú fyrsta sem sveitin gefur út í áratug. Fram kemur í umfjölluninni að Albini hafi verið einn máttarstólpa alt-rokk senunnar. 

Albini fæddist í Pasadena í Kaliforníu en flutti ungur að árum með fjölskyldu sinni til Missoula í Montona. Hann nam blaðamennsku í Illinois og var virkur í samfélagi pönkara í Chicago. Á níunda og tíunda áratugnum stofnaði hann nokkrar hljómsveitir og fór að prófa sig áfram í tónlistarupptöku og framleiðslu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×