Fótbolti

Stefán Teitur og fé­lagar bikar­meistarar

Siggeir Ævarsson skrifar
Það var alvöru stemming á Parken í dag. Stefán Teitur Þórðarson sést þarna fremstur í flokki
Það var alvöru stemming á Parken í dag. Stefán Teitur Þórðarson sést þarna fremstur í flokki vísir/Getty

Það var boðið upp á Íslendingaslag í dönsku bikarúrslitunum í dag þegar Silkeborg og AGF mættust á Parken.

Stefán Teitur Þórðarson og Mikael Anderson léku báðir allan leikinn með sínum liðum en það var Stefán sem hafði betur að þessu sinni.

Oliver Sonne kom Silkeborg yfir með marki á 39. mínútu en AGF voru með heljartök á leiknum í seinni hálfleik án þess að ná að skora og sköpuðu sér fá góð færi.

Stefán Teitur var áberandi í leik Silkeborg í seinni hálfleik, brenndi af dauðafæri og hélt svo að hann hefði tryggt sigurinn með marki sem dæmt var af vegna rangstöðu.

Stefán var svo valinn „bikarbaráttumaður“ ársins (d. årets pokalfighter) í lok leiks.

Silkeborg hélt leikinn út en markverðir beggja liða áttu frábærar vörslur í seinni hálfleik þar sem bæði lið freistuðu þess að breyta gangi leiksins. Lokatölur 1-0 og Silkeborg er danskur bikarmeistari 2024.

Brjáluð stemming á þéttsetnum Parken í dag en það þurfti að stöðva leikinn um stund þar sem kveikt var á gríðarlegum fjölda blysaTwitter@Runolfur21



Fleiri fréttir

Sjá meira


×