Innlent

Þurftu að farga 30 þúsund ein­tökum vegna for­seta­fram­boðs

Jakob Bjarnar skrifar
Katrín mun hafa verið að vinna að inngangi bókarinnar fram á síðustu stundu, sem gefur til kynna að ákvörðunin um að gefa kost á sér til forseta Íslands hafi ekki verið tekin af léttúð. 
Katrín mun hafa verið að vinna að inngangi bókarinnar fram á síðustu stundu, sem gefur til kynna að ákvörðunin um að gefa kost á sér til forseta Íslands hafi ekki verið tekin af léttúð.  vísir/stjórnarráðið/vilhelm

Farga þurfti þrjátíu þúsund eintökum af bók sem til stóð að gefa þjóðinni í tilefni áttatíu ára afmælis lýðveldisins. Ástæðan var breyting á skipan forsætisráðherra sem kallaði á breytingu á formála bókarinnar.

Tilkynnt var í upphafi árs að forsætisráðuneytið ætlaði, í samvinnu við Forlagið, að gefa út bókina Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær með þjóðhátíðarljóðum og greinum um fjallkonuna í byrjun júní 2024 sem verði gefin landsmönnum. Bókinni stóð til að dreifa um landið og áttu landsmenn að geta nálgast hana í bókasöfnum, bókaverslunum og sundlaugum. Það stendur raunar enn til.

Verkefnið mun hafa verið sérstakt hugarfóstur Katrínar Jakobsdóttur þá forsætisráðherra, bókargjöf til þjóðarinnar. Þrjátíu þúsund eintökum þurfti að farga því inngangsorð, sem Katrín ritaði sem forsætisráðherra, þeim þurfti að skipta út. Bjarni Benediktsson fékk það í fangið að rífa upp penna og rita inngang, sem nýr forsætisráðherra.

„Þegar nýr forsætisráðherra tók við störfum var eðli málsins samkvæmt tekið til við að breyta formála bókarinnar,“ segir Sighvatur Arnmundsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins.

Bjarni og Katrín kynna sáttamála ríkisstjórnar á Kjarvalsstöðum árið 2021.Vísir/Vilhelm

„Bókin verður þannig gefin út með formála þess forsætisráðherra sem situr í embætti á útgáfudegi. Með nýjum formála,“ segir Sighvatur.

Bókin var prentuð í þrjátíu þúsund eintökum, búið var að prenta upplagið en því þurfti að farga. Til stendur að dreifa bókinni í júní.

„Kostnaðaráætlun verkefnisins í heild er um 30 milljónir króna. Endanlegar kostnaðartölur liggja ekki fyrir en búist er við að heildarkostnaður verði innan áætlunar,“ segir upplýsingafulltrúinn.

Tilefni gjafarinnar er 80 ára afmæli lýðveldisins. Titill bókarinnar er Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, með vísan til ljóðs Þorsteins Erlingssonar. Eins og áður sagði ritar forsætisráðherra formála en greinahöfundar eru; Goddur, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttir og Áslaug Sverrisdóttir. Þýðingar á formála og útdrætti greina verða á pólsku og ensku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×