Innlent

Glæsi­legt fuglasafn í veiði­húsinu við Hítar­á

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Reynir Þrastarson, sem er leigutaki í Hítará í Borgarbyggð, segir fuglasafnið alltaf vekja mikla athygli gesta.
Reynir Þrastarson, sem er leigutaki í Hítará í Borgarbyggð, segir fuglasafnið alltaf vekja mikla athygli gesta. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Eitt glæsilegasta fuglasafn landsins í einkaeigu er í veiðihúsinu við Hítará á Mýrum í Borgarbyggð, en þar má sjá fjölbreytt úrval af allskonar uppstoppuðum fuglum, meðal annars Geirfugl.

Hítará er ein af vinsælustu veiðiám landsins þar sem veiðihúsið Lundur stendur en Jóhannes á Borg eins og hann var alltaf kallaður byggði húsið á árbakkanum. Í húsinu er glæsilegt fuglasafn, sem Jóhannes átti en hann lést 1968. Hítará afmarkar Mýrasýslu og Snæfells- og Hnappadalssýslu.

„Þetta fuglasafn er frá Jóhannesi á Borg en hann safnaði þessum fuglum í áraraðir þegar hann var leigutaki hér í Hítará frá 1940 til 1965. Félagi hans, Kristján uppstoppari á Akureyri stoppaði megnið af þessu upp fyrir Jóhannes,” segir Reynir Þrastarson, leigutaki í Hítará.

Fuglasafn Jóhannesar á Borg í veiðihúsinu í Hítará er glæsilegt í alla staði og er líklega stærsta einkasafn sinnar tegundar á Íslandi.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Safnið er allt hið glæsilegasta.

„Já, þetta er eitt stærsta fuglasafn í einkaeigu á Íslandi held ég. Og núna á veiðifélagið safnið eftir að það keypti húsið af Jóhannesi og hefur haldið þessu nokkuð vel við og til dæmis með þennan Geirfugl, sem er hér á bak við þig, sem er gervi, hann vekur alltaf mikla athygli en því miður höfum við ekki pláss fyrir Haförninn, sem er úti í öðru húsi,” segir Reynir.

Geirfuglinn á safninu vekur alltaf mikla athygli gesta.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Reynir segir að fólk hafi alltaf jafn gaman af því að skoða fuglasafnið og það geti varið löngum tíma í að virða fuglana fyrir sig og njóta þess að berja þá augum.

En getum fólk komið og skoðað eða er þetta bara fyrir ykkar viðskiptavini?

„Já þetta er í rauninni bara fyrir okkar viðskiptavini og er bara hluti af þessari umgjörð, sem er í Hítará. Fólk verður kjaftstopp þegar það sér safnið, það er bara þannig,” segir Reynir.

Það er alltaf eitthvað um hópa, sem koma á Hítará og fá þá skemmtilega frásögn frá Reyni um staðinn og fuglasafnið.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og nú styttist óðum í að veiðin hefjist í Hítará.

„Já, það er um mánuður en við byrjum 17. júní og það verður mikill spenningur þegar það gerist og alltaf gaman. Það er allt uppselt og bókað hjá okkur í sumar”, segir Reynir að lokum.

Veiði hefst í Hítará 17. júní og er búið að selja öll leyfi í ána í sumar.Magnús Hlynur Hreiðarsson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×