Eldvörp líkleg næst Eldfjallafræðingur telur líklegt að næsta gos á Reykjanesi verði í Eldvörpum. Það sé langbesti staðurinn til að fá nýtt eldgos því á svæðinu sé mikið flatlendi og langt í mikilvæga innviði. Nýtt eldgos geti hafist hvenær sem er Innlent 9.5.2024 11:35
Eldgosinu lokið eftir 54 daga Eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina sem hófst þann 16. mars er nú lokið. Sérfræðingar Almannavarna flugu dróna yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum. Enn er kvikusöfnun í kvikuhólfi undir Svartsengi og líklegt að annað kvikuhlaup hefjist áður en langt er um liðið. Innlent 9.5.2024 08:15
Margt bendi til þess að gosinu sé lokið Margt bendir nú til þess að eldgosinu við Sundhnúka sé lokið. Þetta kemur fram í pistli frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands á Facebook. Gosórói hafi fallið stöðugt frá því snemma í morgun. Innlent 8.5.2024 20:23
Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Gosið virðist vera að lognast út af en búast má við öðru þar sem kvikuhólfið undir Svartsengi er komið að þolmörkum. Prófessor í jarðeðlisfræði bendir á að það nýja gæti orðið um þúsund sinnum aflmeira en það sem nú kraumar. Enginn ætti að vera nærri sprungunni Innlent 7. maí 2024 12:58
„Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Eldgosið við Sundhnúka virðist nú vera í andarslitrunum, samkvæmt upplýsingum frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands. Innlent 5. maí 2024 00:05
Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson og Grímur Björnsson segja nýjustu gögn Veðurstofu Íslands um hraunflæði frá Sundhnúksgígaröðinni styðja við fyrri spá þeirra um lok eldvirkni í gígaröðinni; að kvikuflæði verði lokið í eldstöðinni seinni part sumars 2024, eða nánar tiltekið um 5. júlí. Jafnframt telja þeir að landris geti haldið áfram að vissu marki án þess að nýtt gos brjótist fram og vísa til reynslunnar frá Kröflueldum. Innlent 4. maí 2024 23:46
„Við reyndum eins og við gátum“ Innviðaráðherra hyggst stofna sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð þar og samfélag. Bærinn mun ráðast í einhverjar uppsagnir vegna breytinganna. Innlent 3. maí 2024 11:45
Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi lagafrumvarp Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra um að stofnuð verði sérstök framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð og samfélag. Svandís segir jarðhræringarnar á Reykjanesskaga vera umfangsmesta verkefni sem stjórnvöld hafi tekist á við vegna náttúruhamfara. Innlent 3. maí 2024 10:51
„Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Veitingastaður og bakarí opnuðu á ný í Grindavík í dag. Einn eigenda veitingastaðarins vill opna bæinn fyrir öllum sem vilja koma og losna við lokunarpósta sem gagnist engum. Innlent 2. maí 2024 19:21
Áfram landris og óvissa um framhaldið Enn mælist landris við Svartsengi og heldur þrýstingur því áfram að byggjast upp í kvikuhólfinu. Hraunflæði úr gígnum sem gýs úr hefur farið minnkandi síðustu daga, en skjálftavirkni á svæðinu aukist. Innlent 2. maí 2024 12:39
Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu. Innlent 2. maí 2024 11:11
Stutt í næsta gos komi til gosloka Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Jarðeðlisfræðingur segir bæði líkur á nýju gosi ofan í það sem er nú í gangi og goslokum, en í því tilfelli myndi líklegast brátt gjósa aftur. Innlent 1. maí 2024 22:01
Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur klukkustundaspursmál í minnsta lagi og dagaspursmál í mesta lagi í að það fari að draga til tíðinda vegna kvikusöfnunnar undir Svartsengi. Innlent 30. apríl 2024 19:59
Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast „Það eru engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að það sé um það bil að hefjast,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Staðan sé svipuð og hún hafi verið síðustu daga. Innlent 30. apríl 2024 14:48
Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Prófessor í jarðeðlisfræði segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni við Grindavík. Innlent 30. apríl 2024 12:15
Aukin virkni í gosinu Eldfjallafræðingur segir merki uppi um að virkni hafi aukist í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt. Landris í Svartsengi hafi stöðvast og kvika leiti nú beint upp á yfirborð úr dýpra kvikuhólfinu. Innlent 30. apríl 2024 09:40
Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn. Innlent 29. apríl 2024 13:01
Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Litlar breytingar hafa orðið á gosinu við Grindavík í nótt þótt kvikusöfnun haldi áfram og hægt hafi á landrisinu. Innlent 29. apríl 2024 07:28
Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Virkni eldgossins við Sundhnúksgíga er með svipuðu móti og síðustu daga. Svo virðist sem mögulega hafi hægt á landrisi undir Svartsengi en náttúruvársérfræðingur segir þó of snemmt að túlka þau gögn sem liggja fyrir á þessari stundu. Innlent 28. apríl 2024 12:46
Líklegt að það styttist í brotmörk Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju. Innlent 27. apríl 2024 20:46
Hraun mjakast yfir varnargarð Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga hefur teygt sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Hún rennur hægt og engin hætta stafar af henni enn sem komið er. Innlent 27. apríl 2024 13:49
Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Ný löng gossprunga getur opnast á hverri stundu og fyrirvaralaust við Sundhnúksgíga að sögn fagstjóra hjá Veðurstofu Íslands. Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks að fara ekki fótgangandi að núverandi gosi. Innlent 27. apríl 2024 12:30
Vara við því að fara gangandi að gosinu Lögreglan á Suðurnesjum varar við því að fara fótgangandi að gosstöðvum. Fram hefur komið í fréttum að líkur aukast með hverjum degi á að ný gossprungja opnist eða að nýtt eldgos hefjist. Vegna þess er fólk varað við því að fara fótgangandi. Innlent 27. apríl 2024 07:37
Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og er enn einn gígur skammt austan við Sundhnúk, virkur. Landris í Svartsengi hefur áfram á sama hraða og eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega, haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða. Innlent 26. apríl 2024 13:17